Hvíldardagurinn

Árshátíð starfsmanna Bolungarvíkurkaupstaðar var haldin í gærkvöldi og mikið var um dýrðir í félagsheimilinu af því tilefni. Rúmlega eitthundrað manns þáðu trakteringar og annan velgjörning sem Vertinn í Víkinni og hennar skyldulið reiddi fram með mikilli snilli. Mér er ljúft og skylt að geta þess að allt gekk eins og í sögu og kvöldið gekk eins vel og hægt var að hugsa sér. Þeir sem störfuðu á mínum vegum stóðu sig afskaplega vel enda ekki er við öðru að búast þegar saman eru komin albestu vinnuhjú hér vestra sem kunna vel til verka og vita alveg upp á hár hvernig hlutirnir skulu framkvæmdir.  Ég er mjög stolt af mínu starfsfólki og  tel mig lánsama að hafa þetta fólk í vinnu.

Skemmt er frá því að segja að veislustjórinn fór á kostum og kom Ylfa Mist mér nokkuð á óvart er hún stýrði veislunni styrkri hendi. Hún var bráðsmellinn og stórskemmtileg. Húsið á sléttunni stóð alveg fyrir sínu að vanda og dansað og tjúttað var fram á rauða nóttina. Segja verður þó alveg eins og er að það voru þreyttar mæðgur sem komu heim þegar líða tók á morguninn og í dag er úr okkur allur vindur og tökum við hlutunum því rólega og höldum því hvíldardaginn heilagan í dag. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það má með sanni segja að kvöldið hafi verið gott í alla staði.  Frábær matur og flottur veislustjóri.

kv Gunna DGH

Gunna Gumma Hassa (IP-tala skráð) 18.11.2007 kl. 17:51

2 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Ég skil nú ekkert í því að það hafi komið þér á óvart mín kæra????

Takk fyrir matinn, hann var góður.

Ylfa Mist Helgadóttir, 18.11.2007 kl. 22:30

3 identicon

Ég er alveg hrikalega hamingjusöm með kvöldið, maturinn frábær, þjónustan góð. Veislustjórinn kom mér ekkert á óvart bara hrikalega skemmtileg, magavöðvarnir aumir við heimkomu. Söngfuglarnir alveg hreint ferlega ljúfir. Ég bara skil ekki hvað hann Bubbi var að hugsa að velja hana Önnu Helgu ekki með sér í liðið bara strax.

En Takk fyrir allt samant

Halla Signý (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 08:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband