Örlagadagur

Í dag er ár liðið síðan ég tók þá ákvörðun fyrir fullt og fast að hætta að drekka áfengi. Þetta er því mikill örlagadagur í lífi mínu. Satt best að segja var það gríðarlega erfitt að þurfa að viðurkenna það að ég réð ekki lengur við neysluna mína og að ég hafði tapað baráttunni við Bakkus. Ég hef oft líkt þessari upplifun við það að skella á vegg með ógnarhraða og geta ekki borið hönd yfir höfuð sér með neinum hætti og það var skrambi erfitt, en hver segir að lífið eigi alltaf að vera auðvelt. Eftir þess afdrifaríku ákvörðun og uppgjöf, hafa spor mín í lífinu verið afar léttstíg og mér finnst einhver æðri máttur leiða mig áfram í hverju skrefi og ég er svo þakklát hverri stund sem ég er laus við áfengið og ég nýt mín sem aldrei fyrr. 

Íhugun dagsins í "Tuttugu og fjögurra stunda bókinni" hljóðar svo:

Þegar þú lítur til baka yfir liðna ævi, er auðvelt að láta sér detta í hug, að leystar þrautir hafi haft þann tilgang að búa þig undir eitthvað mikilvægt hlutverk í lífinu. Allt líf þitt hefur kannski verið hnitmiðað af Guði til þess að láta þig vinna eitthvað þarft í þessum heimi. Líf hvers manns er eins og forsmíð að mósaíkmynd. Hvaðeina sem fyrir þig kemur er eins og smásteinn í myndinni og sérhver smásteinn fellur inn í fullgerða mynd lífs þíns, sem Guð hefur dregið upp.

Bæn dagsins í þessari sömu bók og gildir fyrir daginn í dag er svohljóðandi:

Ég bið að ég þurfi ekki að sjá allt mynstur lífs míns. Ég bið að ég beri traust til myndasmiðsins.

Hver svo sem þessi myndasmiður er þá gleðst ég yfir hverjum smásteini sem haganlega er fyrirkomið í mósaíkmynd í lífsmynstrinu mínu. Ég mun halda áfram á sömu braut og halda áfram að vinna sigra á hverjum degi.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Magnússon

Til hamingju með daginn. Það er alveg rétt hjá þér að meðan fólk er að drekka þá sér það ekki að það geti verið gleði eða gaman án áfengis en eins og þú segir að þú njótir þín sem aldrei fyrr þá er það einmitt reynsla allra  sem ná árangri í baráttunni við Bakkus að þau njóta sín sem aldrei fyrr. Innilega til hamingju og gangi þér vel.

Jón Magnússon, 11.11.2007 kl. 14:42

2 Smámynd: Júlíus Valsson

Til hamingju með daginn! Gangi þér vel í framtíðinni!

Júlíus Valsson, 11.11.2007 kl. 14:57

3 identicon

  Til gamingju með daginn gangi þér allt í haginn.

                                                     Erla V.

Erla V (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 19:39

4 Smámynd: Halla Signý Kristjánsdóttir

Til lukku með daginn!

Halla Signý Kristjánsdóttir, 11.11.2007 kl. 21:26

5 identicon

Frábært hjá þér, til hamingju með daginn!

Kveðja, Auður.

Auður (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 10:28

6 identicon

Innilegar hamingjuóskir með áfangann kæra hálfsystir.   Ég er að upplifa það sama og þú í minni baráttu við þennan sjúkdóm. Eins og við vitum bæði þá er hann lævís og ólæknandi en sem betur fer er hægt að halda honum niðri með stöðugum áminningum og vinnu sem aldrei má trassa þó svo að við hugsum ekki lengra fram í tímann en "einn dag í einu".

Baráttukveðja, Gylfi

Gylfi Gunnarsson (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 12:01

7 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Bestu þakkir fyrir góðar kveðjur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 12.11.2007 kl. 23:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband