Kom sá og sigraði

Kalli HallgrímsKalli Hallgríms kom sá og sigraði í gærkvöldi eins og við var að búast. Strákurinn er mjög liðtækur gítaristi og söngvari og lætur brandara og gamansögur flakka í gríð og erg á milli tónlistaratriða. Fjölmargir komu til að berja hann augum og hafa gaman saman og menn skemmtu sér hið besta. Kalli sagði m.a. söguna af Barna Jóni sem bjó á ströndunum hér fyrr á árum. Hann var sagður hafa barnað fimm konur á leið sinni frá Ingólfsfirði á Ströndum að Brú í Hrútafirði og geri aðrir betur. Karlinn hefur án efa borið með sér mikinn yndisþokka og karlmennskan hefur trúlega dropið af honum er hann blikkaði fljóð á öðrum hverjum bæ á ferð sinni um héraðið sem varð þess valdandi að konur urðu tilkippilegar í allskyns kitl og kelerí.

Benni Sig. lét sig ekki vanta og tók lagið með Kalla og skipti þá engu máli hvort óperettur eða Benni, Gummi og Kalliunaðsleg ástarljóð urðu fyrir valinu, þvi Benni getur sungið allt. Undir bláhimni ómaði um Kjallarann um blíðsumarsnætur og rósfagrar meyjar hlustuðu með athygli á Gumma Þórarins og Benna meðan döggin á grasinu greri á síðasta degi sumars og vindurinn hafði hljóð rétt á meðan. Ó sóle míó hljómaði líka um salinn og Geiri á Grundunum tók undir sem aldrei fyrr og lagði allt sitt í sönginn. Kattadúettinn er hjóm eitt miðað við dúettana sem fengu að njóta sín í Einarshúsi í nótt og ómuðu um næsta nágrenni. Tríóið sem sjá má á myndinn hér til hliðar  tekur sig vel út og er til fyrirmyndar í alla staði er þeir sungu um daginn sem í austrinu rís.

Gler hjartað slærSpilavistin gekk vel að vanda. Gunnar Júl hefur verið með eindæmum heppinn í spilamennskunni undanfarin þrjú kvöld og fór hann heim með tvenn verðlaun í gærkvöldi. Bæði verðlaun fyrir flestu stigin eftir gærkvöldið og einnig átti hann flestu stigin eftir þrjú síðastliðnu spilakvöld. Hann hlaut lampa unnin úr gleri í listasmiðjunni af hagleikskonunni okkar henni Dísu Hrólfs, en hún ber hitann og þungan af öllum glerlistaverkum sem unnin eru staðnum. Lampinn ber heitið "Hjartað" og er einn af fjórum lömpum sem hún hefur búið  til handa mér til að nota í aðalverðalaun í vetur. Eftir eru Spaðinn, Laufið og Tígullinn og menn eru hvattir til að missa ekki af spilavistinni svo líkurnar á slíkum eðalvinningi verði sem bestar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Ragna og aðrir lesendur.

Mig langar bara að leiðrétta aðeins það sem hér stendur um strandamanninn dugmikla. Þú hefur reyndar rétt eftir mér, en ég fór ekki alveg rétt með allar staðreyndir. Það mun reyndar vera rétt að hann hafi barnað 5 konur á þessari leið en hann hét víst ekki Jón, heldur Daníel, Barna-Daníel. Ég biðst afsökunar á rangfærslunni.

Þess má til gamans geta að í Bréfi til Láru fer Þórbergur Þórðarson nákvæmlega sömu leið í þeim tilgangi að hitta ástina sína stóru, en hann hafði svo ekki burði í sér til að banka upp á hjá henni. Hann bara þorði því ekki. Í því ljósi er sagan af af Barna-Daníeli enn skemmtilegri. Svo eru sauðfjárbændur hér í Biskupstungum, sem eru til að byggja upp nýjan fjárstofn, að velkjast í einhverjum vafa um það hvort þeir eigi að taka fé úr Öræfum eða af Ströndum. Segir það sig ekki sjálft?

Kalli (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband