18.10.2007 | 11:27
Konur á málþingi um atvinnumál
Halda á málþing um atvinnumál í Ísafjarðarbæ á laugardag og er yfirskriftin " atvinna fyrir alla". Athygli hefur vakið að fimmtán fílefldir karlar halda fyrirlestra um þessi mál en einungis er pláss fyrr tvær penar og fallegar konur og hefur það farið fyrir brjóstið á einum og öðrum. Fyrir utan þessar tvær konur, sem hér um ræðir, fara konur með fundarstjórn, súpa er i boði í hádeginu á þinginu og ég reikna fastlega með því að konur fái að koma að eldamennskunni og í lokin hafa skipuleggendur heldur betur sofnað á verðinum ef konur hafa ekki verið fengnar til að taka til og þrífa eftir herlegheitin. Svo má ekki gleyma því að konur mega koma og hlusta á það sem í boði er á þessu málþingi og telst það nokkuð vel boðið að mínu viti. Trúlega telja sumir að kynjahlutföllin jafnist út þegar á þetta allt er litið og að jafnræðis sé gætt í hvívetna ef allt það sem hér hefur verið minnst á er tekið með í reikninginn.
Ég er kona.....ég er kona sem stend mína plikt....ég er kona sem er komin langleiðina með að koma börnunum mínum vel til manna....ég er kona sem rek fyrirtæki í mínum heimabæ og stend fyrir flestum uppákomum í byggðarlaginu.......ég er kona sem verið hefur í bæjarstjórn í sjö ár og unnið eftir fremsta megni að velferð bæjarins míns.....ég er kona sem held úti vikari.is.........ég er kona sem er núna formaður næstu þorrablótsnefndar......ég er kona sem stend að uppgerð eins merkilegasta húss bæjarins ásamt manninum mínum......ég er kona sem er ágætis hagyrðingur....ég er kona sem er óvirkur alkahólisti sem reynir að sína mannkærleika eftir fremsta megni....ég er kona sem held úti málþingi flesta daga á bloggsíðunni minn....ég er kona sem reynir að taka sig á á hverjum degi....ég er kona......ég er stolt kona.
Stelpur!!
Verum stoltar
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Vel mælt! - Baráttukveðjur.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 18.10.2007 kl. 16:50
Góð!
Þú ert kona sem stuðlar að því að fjórar konur í þínu byggðalagi hafi vinnu, á Þínum vinnustað, mér finnst bara að þú ættir að halda málþing,
Halla Signý (IP-tala skráð) 19.10.2007 kl. 08:04
Ég styð málþing um hlut kvenna í atvinnulífi! Gerum eitthvað.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 19.10.2007 kl. 12:04
Áfram stelpur!! Ég geri það sem gera þarf.
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 19.10.2007 kl. 13:47
- ég er líka kona, fylgist með ykkur hinum konunum að brillera hægri vinstri, flottar !
Ester Rut Unnsteinsdóttir, 20.10.2007 kl. 11:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.