10.10.2007 | 08:21
Lilja
Táningurinn minn á afmæli í dag. Lilja er orðin þrettán ára gömul og hún breyttist á einni nóttu úr litlu og saklausu barni í ungling. Það er hrein ótrúlegt hvað tíminn líður hratt og sú tilfinning að börnin vaxi mér yfir höfuð eitt af öðru er nokkuð merkileg. Stelpan var búin að hafa vaðið fyrir neðan sig og halda stelpu partý og taka með því forskot á sæluna hvað það varðar. Fjölskylduboð bíða fram að helgi því annasamur dagur er runninn upp því Bubbi er mættur á svæðið og mikið að gera í dag. Lilja er mjög skemmtileg stelpa, skondin og skýr og mikill húmoristi og hláturmild. Hún er réttsýn eins og systkini hennar og þekkir vel muninn á réttu og röngu. Hún vinnur við barnapössun með skólanum og stendur sig þar með prýði og passar vel upp á sitt. Á myndinni má sjá skvísuna í góðum selskap í Dæli í Víðidal um helgina. Það eru þær Sponsa, Osa og Hómer sem njóta þessa að láta Vestfirðinginn stjana við sig á alla lund. Mig langar að senda þessu fýruga fljóði og litlu stelpunni minni sem er að verða svo stór afmæliskveðju í tilefni dagsins.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 635846
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.