Spilavistin byrjar í kvöld

Spilavistin hefst að nýju í kvöld, föstudagskvöld kl. 21:00, og hef ég haft spurnir af því að fjöldi manns bíði með óþreyju eftir því að fá að hittast og taka í spil. Spilað var á sjö til átta borðum að jafnaði sl. vetur og skemmtu spilafíklar sér afbragðsvel er þeir spiluðu nóló og grand við keppinauta sína. Verðlaun verða að sjálfsögðu veitt út og suður og geta þeir sem fá sem flesta slagina, slegið því nánast föstu að fá sigurlaunin en einnig fá þeir sem gjörsamlega geta ekki neitt og spila frá sér ráð og rænu, stundum glaðning í sárabætur. Geisladiskurinn með Villa Valla var vinsæl fyrir þá sem náðu ekki því takmarki sínu að sigra og mun jazzistinn hljóma víða á heimilum í Bolungarvík eftir að hafa fylgt fjölmörgum spilagestum heim af spilavistinni síðastliðinn vetur. Hagleikskonur sem starfa í Listasmiðjunni í Bolungarvík hafa gert glæsilega gripi sem verða aðalverðlaun eftir þriggjakvölda keppni og verða menn að vera duglegir að mæta, því til mikils er að vinna og vegleg verðlaun eru í boði. Sjáumst hress og kát í kvöld.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fulltrúi fólksins

Hvernig var spilakvöldið?  Dauðlangaði að fara en komst ekki.  Hvernig eru reglurnar, er of seint að mæta á næsta kvöld, getur maður mætt einn eða er ætlast til þess að það séu 2?  Hvað kostar?

Fulltrúi fólksins, 29.9.2007 kl. 21:18

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Það er aldrei of seint að mæta á spilakvöld í Einarshúsi en líkurnar á aðalvinningi eftir þriggjakvölda keppni minnka eftir því sem sjaldnar er mætt og hver spilar fyrir sig svo þú getur mætt einn/ein. Aðgangseyrir er 500 krónur sem fer upp í að kaupa vinninga, en veglegir vinningar eru í boði í hverri spilavist, bæði fyrir þá sem fá flest stigin, en einnig fá þeir sem fá fæst stig smá sárabætur, svo það er til mikils að vinna í hvert sinn. Ég mælist til þess að Fulltrúi fólksins blikki Vertinn í Víkinni ef hann/hún heimsækir Einarshús svo hægt sé að þjónusta hann/hana með extra mikilli stimamýkt.

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 30.9.2007 kl. 14:55

3 Smámynd: Fulltrúi fólksins

Takk fyrir þessar upplýsingar.  Égmæti pottþétt næst ef ég á "leið hjá" víkinni

Fulltrúi fólksins, 30.9.2007 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 635846

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband