16.9.2007 | 23:31
Sælir eru þeir.........
Annasöm helgi er nú að renna sitt skeið á enda og hefur Vertinn í Víkinni staðið nótt sem nýtan dag ásamt sínu frábæra vinnufólki í Einarshúsi og hvergi hefur verið slegið af. Hægt er að segja að unnið hafi verið í akkorði síðan á föstudagsmorgun við að elda súpur og hantéra aðrar trakteringar ofan í gesti og gangandi.
Föstudagur
Föstudagurinn var undirlagður fyrir súpufund Sjálfstæðismanna og einnig var tekið á móti góðum gestum frá Glitni sem þáðu eitt hið besta hlaðborð dýrindis smárétta í bland við krásir og aðrar guðaveigar. Biggi Olgeirs kom sá og sigraði það kvöld eins og svo oft áður og hann söng fyrir gestina mína nýjustu stuðlögin í bland við gömul og góð dægurlög eins og " ef ég væri ríkur" og " money, money, money" sem Abba gerði svo frægt á sínum tíma. Kvöldið var einstaklega skemmtilegt og fóru menn sáttir til síns heima eftir kvöldið og lögðust til hvílu fullvissir um ágæti þess að eiga viðskipti sín við Glitni og kunnu háttsettum embættismönnum þakkir fyrir hve pund þeirra fær góða ávöxtun hjá bankanum.
Laugardagur
Skáksnillingar mættu galvaskir á Hraðskákmót sem haldið var á laugardag. Trakteringar voru til reiðu í Einarshúsi og trúlega hafa svona miklir gáfumenn sjaldan verið samankomnir í húsinu á sama tíma. Vertinn tefldi fram dýrindismat í þrem eða fjórum réttum og telja má nokkuð öruggt að engum hafi orðið meint af þeim dýrðarkrásum sem bornar voru á borð fyrir stórmeistara skáklistarinnar á Íslandi. Þegar líða tók á kvöldið fóru hinir og þessir að týnast í Kjallarann. Það var vitað mál að troðfullt yrði í Einarshúsi þetta kvöld því búið var að auglýsa brjálað bílskúrsband um allar sveitir með dreifibréfi og Grjóthrunið stóð alveg fyrir sínu. Bassinn hjá bæjarstjóranum magnaði upp bumbusláttinn hjá gítarleikaranum og trommarinn lamdi húðir svo undirtók í þessu aldagamla húsi og undirstöðurnar titruðu og skulfu. Ég tel það næsta víst að titringsins hafi gætt í nærliggjandi húsum en vonandi hafa draumar nágranna Einarshúss þó ekki raskast svo neinu nemi þegar undirtók í Hólshreppi.
Biggi Olgeirs átti fullt í fangi þetta kvöld með að koma tónlist sinni á framfæri vegna afskiptasemi ölvaðra og athyglissjúkra karla og kerlinga sem ekkert erindi áttu upp á stóra sviðið í Kjallaranum en vildu syngja og spila með. Biggi var með söngkonu með sér á sviðinu og þurfti enga hjálp enda er þetta dúó alveg einstaklega gott. Á endanum hrökklaðist hinn ástsæli trúbador í burtu vegna ágangs aðdáenda og yfirgaf samkvæmið. Vertinum mislíkaði þetta ástand eitt augnablik og þurfti að byrsta sig við mann og annan og nú hafa þær ófrávíkjanlegu reglur verið settar að þegar lifandi tónlist er í boði í Einarshúsi verður þeim sem sjá sig knúna til að hafa afskipti af slíkum tónlistarflutningi með einum eða öðrum hætti vísað á dyr hið snarasta. Hægt verður þó án efa að semja um að taka eitt og eitt lag við sérstakar aðstæður en þá í fullu samráði við Vertinn og tónlistarmennina sem leika í það og það skiptið. Mælst er til þess að þeir sem vilja láta ljós sitt skína í söng, bíði með slíkt þar til karaókí verður næst í boði í Kjallaranum en þá er öllum frjálst að taka lagið og þá er tilvalið að spangóla að vild kvöldið út í gegn.
Nú leitar Bubbi Morthens logandi ljósi að söngvara í bandið sitt og telur vel koma til greina að slíkur látúnsbarki finnist í Bolungarvík. Í tilefni af því, komu Náttúruhamfarirnar saman til æfinga í Einarshúsi og tóku nokkur vel valin lög. Á efnisskránni eru aðallega óskalög sjómanna í bland við rokkuð grafarljóð sem færð hafa verið í nýtísku búning. Góður rómur var gerður að tónlistarflutningi þessara Náttúruhamfara þrátt fyrir það að þeir fáu sem hlustuðu hafi skrúfað nánast alveg niður í heyrnartækjunum sínum, þá þóttust þeir fíla okkur í botn og lýstu yfir ánægju sinni með útlit og atgervi hljómsveitarmeðlima. Ég tel næsta víst að kóngurinn sjálfur komi til með að falast eftir því að fá þessa nýstofnuðu hljómsveit til liðs við sig þegar hann kemur vestur.
Flateyringurinn knái, Sigurður Hafberg, breytti sér í líki Meistara Megasar og fór á kostum. Til þess að gera gervið sem best úr garði og ná töktum Meistarans til fulls þurfti að losa örlítið um tanngarðinn og tilvalið þótti að bleyta hann upp í bjór og ekki er annað að sjá en að karlinn sé þokkalega tenntur svona dags daglega dags. Megas hefði án efa bliknað í samanburðinum og hefði fallið í skugga Sigurðar með það sama ef hann hefði hætt sér í Kjallarann rétt á meðan þessi tiltekni gjörningur stóð yfir. Þetta gefur lífinu lit og þarna á myndinni má sjá tvo fýra sem ekki kalla allt ömmu sína og framkvæma furðulegustu hugdettur sínar óhikað ef svo ber undir.
Sunnudagur
Ég sat ennþá í súpunni á sunnudaginn því golfarar á Syðridalsvelli þurftu súpu og brauð í hádeginu. Það gekk allt eins og í sögu og aspassúpan bragðaðist með ágætum. Þá er Vertinn og hennar fólk búið að matreiða ofan í rúmlega tvöhundruð manns um helgina og kalla má það gott að geta annað því. Ég segi það enn og aftur að ég gæti ekki staðið í þessu ef ég hefði ekki þau albestu vinnuhjú sem völ er á og ég er bara einn lítill partur af öllu því prógrammi.
Til að vinda ofan af helginni þótti við hæfi að fara í kirkju og Hólskirkja var heimsótt og gott var að hlusta á guðs orð. Ég á í fórum mínum lítið fermingarbarn sem las ritningarlestur í messunni en Lilja á að fermast á næsta ári. Sr. Agnes talaði um leiðtoga kvenna í ræðu sinni og nefndi m.a. systurnar Mörtu og Maríu en María þessi fékk að sitja við fætur meistarans og tala við hann eins og jafningja á meðan Marta þjónaði þeim með ólund. Innihaldið í þeirri frásögn sagði okkur það að María hafði val til að tala við frelsarann og segja má að hún hafi í raun verið ein af lærisveinum hans og Jesús bar virðingu fyrir henni líkt og öllum öðrum. Um leið og athöfnin byrjaði skein sólin svo glatt inn um gluggann og sveipaði ljóma um alla kirkju og mér var hugsað til ræðunnar sem ég hélt á aðventukvöldi fyrir tæpu ári síðan þegar ég sagði í einlægni minni frá þeim sporum sem ég gekk þegar ég leitaði mér hjálpar á sjúkrastöðinni Vogi, þá fannst mér kirkjan ljóma og flestir þeir sem hlýddu á orð mín þá, leiða mig enn og styrkja. Ég var þá eins og María, systir Mörtu í frásögninni hér fyrr, ég hafði val og nýtti mér það til fulls, enda lít ég óhikað á mig sem leiðtoga.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Mikið hlítur að hafa verið leiðinlegt þarna úr því að gestirnir hafa yfirtekið samkvæmið! Það hefur greinilega ekki dugað þeim að drekkja sér í veigum heldur hafa þeir reynt að hressa upp á stemninguna með því að taka yfir skemmtidagskrána. Eins gott að mar var ekki á svæðinu. Hvers skonar vert ert þú eiginlega ef gestirnir mega ekki vera fullir, ég hélt að fólk færi á pöbbann til að hella í sig! Þannig var það allavega í minni sveit!
Ónefndur (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 20:26
Þetta er nú lélegi athugasemdaskrifarinn hér að ofan. Þó svo að einhverjir gestanna hafi ekki haft stjórn á drykkjunni og verið orðnir meirihluta veislugesta til leiðinda, þá er ekki hægt að tala um að stemmningin hafi veri léleg. Ég held að þú ættir bara að halda þig í þinni sveit. Menn verða bara að geta hagað sér þó svo að þeir séu fullir það er grundvöllurinn fyrir því að allir geti skemmt sér.
Andri Jónsson (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 12:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.