11.9.2007 | 16:19
Stund milli stríða
Stund er notuð milli stríða til að tylla sér niður við skriftir og fá hugann til að fara á flug. Mikið er um að vera í Einarshúsi um þessar mundir og halda mætti að öll Íslenska þjóðin hafi staðið á öndinni þann tíma sem ég tók mér frí. Núna keppast allir stærstu bankar landsins um að bjóða útvöldum viðskiptavinum sínum í veitingar hjá Vertinum í Víkinni og virðast það samantekin ráð að stefna sem flestum í húsið á sama tíma. Herlegheitin byrja á fimmtudaginn með veislu og verður hver hópurinn á fætur öðrum í trakteringum og frí verður ekki í sjónmáli fyrr en í fyrsta lagi á sunnudag. Ég sem er varla búin að dusta af mér mesta ferðarykið, verð að standa klár eins og alltaf og verður það mér trúlega til bjargar að Guðlaug, Gunna og Elsa verða mér til halds og trausts. Það vill til að ég hafði með mér svo mikið sólskin í farteskinu að utan að allt leikur í höndum mér þessa dagana og þetta á eftir að ganga með glans.
Hraðskákmót er einnig um helgina í Víkinni góðu og stórmenni skáklistarinnar sækja okkur heim. Heyrst hefur að þessir kappar kunni mannganginn utan að og nýti sér Sikileyjarvörn þegar allt annað þrýtur. Einhverjar trakteringar munu þeir þiggja í Einarshúsi á meðan þeir dvelja á staðnum og munu þeir væntanlega þurfa að þola skák og mát frá drottningunni sem öllu ræður á taflborðinu og teflir fram riddurum eftir þörfum á góðri stundu í Einarshúsi. Vertinn í Víkinni vílar ekki fyrir sér að tefla biskupi fram á Seres sex ef svo ber undir, enda er hún hrókur alls fagnaðar og peðin eru flest öll í hennar liði.
Nauðsynlegt þótti í tilefni þessara tímamóta að fá einn besta trúbador landsins til að troða upp í Kjallaranum og gleðilegt er að segja frá því að allt var lagt í sölurnar til að fá Bigga Olgeirs hingað vestur til að leika fyrir gesti á laugardagskvöldið. Strákurinn er frábær og hægt er að lofa miklu fjöri er hann stígur á stóra sviðið í Kjallaranum með gítarinn sinn og röddina fögru. Biggi Olgeirs er í boði vikari.is og Baldurs Smára, auk Vertsins í Víkinni.
Eftir minni bestu vitund munu náttúruhamfarir einnig stíga á stokk á laugardagskvöldið í Kjallaranum og reikna má með grjóthruni í Hólshreppi þessa nótt. Vonandi raskar það þó ekki ró heiðvirtra húsmæðra sem ekki mega vamm sitt vita og leiða hjá sér skriðuföll og grjóthrun eftir fremsta megni. Það er mín bjargfasta trú að háa hamraborgin sem vakir hér yfir og býr í fjallasölum umhverfis Víkina góðu, hafi hljótt um sig þessa nótt og leyfi hinu eina sanna Grjóthruni í Hólshreppi að njóta sín.
Ég hvet ykkur til að mæta....................ég held að það gæti orðið gaman.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Sæl allt af gaman að rekast hingað inn. Hann verður ekki verri hópurinn sem þú færð þan 22. sept skal ég segja þér
Eins gott að hafa einhvern stuðpúðann að spila þá
þetta er einvala lið af ártgangi 63 
Sjáumst hess
Gunna (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 12:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.