Komin heim

Kertaljósið á eldhúsborðinu flöktir makindalega um rökkrið og lætur velþóknun sína yfir heimkomu Vertsins í Víkinni berlega í ljós er það sendir frá sér skínandi birtu og yl. Kerti loga í hverju skúmaskoti hér heima ,og ánægjan yfir því að vera loksins komin heim liggur í loftinu og sendir seiðandi bylgjur um húsið. Það er alveg frábært að vera komin heim í heiðardalinn eftir nokkurra vikna fjarveru og kertaljósið veitir mér innblástur til að blogga.

Bíllinn í nýjar hendurDagurinn í gær var viðburðarríkur og engum líkur, því Vertinn hafði fjárfest í nýjum bíl af gerðinni Toyota Hilux. Slík gerð af bíl hefur verið í uppáhaldi hjá okkur hjónum til margra ára og nokkur slík eintök hafa verið í eigu okkar í gegnum tíðina og mikið traust hefur fylgt því að aka um á slíkri kerru. Þessi eðalvagn er allur hinn glæsilegasti og líður áfram eins og hugur manns og fer með mig eins og drottningu. Liturinn er blóðrauður og það stirnir á gersemina hvar sem litið er og erum við strax orðnir mestu mátar. Ótrúlegt en satt þá þóknast hann mér á alla lund og gerir nánast hvað sem ég bið hann um og segjast verður eins og er að þjónustulundin var einstök frá upphafi og mér var sýnd skilyrðislaus virðing frá þeirri stundu er ég settist upp í hann í fyrsta sinn. Sölumaður Toyota brosti út í bæði er hann afhenti Vertinum í Víkinni lykilinn að rósrauðu glæsikerrunni við húsakynni Toyota umboðsins í gær enda sá hann fyrir sér að hafa fengið dágóðan bónus fyrir viðskiptin við Vestfirðingana.  Vertinum í Víkinni þótti sölumaðurinn þó frekar ástleitinn í restina, því hann rétti fram fagurgylltan kassa sem var uppfullur af sykursætu hjartalaga súkkulaði með rómantískri nougat fyllingu. Tel ég næsta víst að hann hafi með þessu athæfi sínu vonast eftir að ég tæki hann með á rúntinn við tækifæri og gæfi honum leyfi til að "taka í trukkinn" og "kitla pinnann" en það er borin von að sú ósk hans rætist. Þeir eru afar fáir útvaldir sem fá að snerta þann rústrauða rósavönd.

KrossgöturLagt var af stað heim á nýja Rauð og ekið var eins og lög gera ráð fyrir beina leið heim. Myndin hér til hliðar er tekin á krossgötum en Andri og Þórunn fóru í rollu réttir norður í land og leiðir skildu í Borgarfirðinum. Andri valdi sér sveitastelpu fyrir kærustu og verður hann því að vera liðtækur í sveitastörfum af ýmsu tagi. Hann verður umfram allt að kunna að reka í réttir, hleypa til og mjólka svo ekki sé talað um að kemba hærur og elta gærur um víðan völl, en það er víst eitt af skyldustörfum bænda víða um sveitir. Greiðlega gekk að keyra þann rauða heim á leið. Niðadimm þoka hafði sest að á Þorskafjarðarheiðinni og lagðist þétt upp að bílnum í þeirri veiku von að fá far en það stóð ekki til boða. Vökul augu vestfirskra vætta fylgdust grannt með okkur á þessu ferðalagi og höfðu auga með því að allt gengi eins og í sögu og keyrt var í hlaðið á Víkinni góðu um miðnættið.

Gott er að koma heim í heiðardalinn og gott verður að takast á við hversdagsleikann á ný. Næg verkefni bíða sem spennandi verður að takast á við og ég hlakka til að bjóða ykkur góðan daginn í búðinni og kasta á ykkur kveðju þegar ég hitti ykkur næst. Núna bíður Kjallarinn í Einarhúsi eftir að ég opni svo mér er ekki til setunnar boðið og bíð því góða nótt.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

innilega til hamingju með nýja bílinn.

Magga Lilja (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 18:02

2 Smámynd: Ester Rut Unnsteinsdóttir

öfunda þig ekkert smá með nýja rauð, minn gamli rauður hunda og músaveiðibíll, var seldur áður en haldið var af landi brott fyrir réttu ári - nú grátum við hann í hljóði enda eðalbifreið sem samkvæmt sérfræðingunum í Top - Gear þáttunum er alveg ódrepandi - og reyndu þeir það þó með hrikalegum aðferðum sem hvergi verða leiknar eftir: voila - hiluxinn lifði af og datt alltaf í gang þrátt fyrir brot og braml, sjóreka og íkveikjur...

til hamingju 

Ester Rut Unnsteinsdóttir, 10.9.2007 kl. 19:01

3 identicon

   Hæ hæ og velkomin heim. Innilega til hamingju með nýa bílinn.   KV Erla

Erla (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 20:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband