6.9.2007 | 15:52
Í heita pottinum
Ekki þarf að hafa mörg orð um ágæti grænmetissúpunnar sem borin var á borð fyrir Vertinn í gærkvöldi enda hafði húsfreyjan lagt allt í sölurnar til að hún gæti bragðast sem best og voru trakteringar allar til fyrirmyndar. Þetta er í fyrsta sinn sem Gunna og Dóri eru sótt heim á nýja heimilið sitt og er húsið allt hið glæsilegasta sem og umhverfi allt um kring. Innihald þessarar gæðasúpu var grænmeti af öllu tagi í bland bacon og kartöflur og kraft sem bragðaðist vel enda er uppskriftin úr vinsælustu bókinni í Víkinni. Ég lét það auðvita ekki vitnast að ég hafði komið við hjá henni Mæju vinkonu minni sem býr í Njarðvík ytri bak Bolungarvík og þar var boðið upp á kaffi og dýrindissúkkulaði svona rétt til að koma reglu á magann fyrir matinn. Forréttur var auðvita jafn nauðsynlegur og aðalrétturinn og eftirrétturinn sem ég fékk hjá Gunnu.
Það sem gerði svo kvöldið alveg einstakt var heiti potturinn sem stendur svo traustur úti á sólpallinum hjá Gunnu og Dóra. Potturinn var fylltur af akkúrat mátulega heitu vatni sem veitti vellíðan. Það kom mér verulega á óvart að það skyldi vera bæði rennandi vatn og klósett í húsinu en ég taldi það vera útilokað að boðið væri upp á slíkan munað á þessu svæði. Ég er samt nokkuð viss um að vatnið í pottinum var mengað vínanda af einhverju tagi því við vorum varla sestar ofan í pottinn þegar yfir okkur sveif mikil þörf fyrir að láta eins og fífl og mátti heyra undrunarraddir nágranna yfir hlátrasköllum okkar er við brugðum á leik í náttmyrkrinu. Við lékum á alls oddi enda höfum við ekki fíflast saman um nokkurt skeið svo komin var tími til að gera smá skandal og ekki úr vegi að hleypa smá fjöri í þennan bæ sem stendur við út við ystu myrkur. Upplagt þótti að notast við verkfæri af ýmsu tagi til að gera stundina enn magnaðri og eins og sjá má á myndinni hér til hliðar kom hallarmál að góðum notum við myndatökurnar. Ekki er annað að sjá en að potturinn halli töluvert ef miðað er við hallamálið og legu okkar vinkvennanna á pottbarminum en hvað sem veldur þessum hliðarhalla, þá er myndin góð og sýnir góðar vinkonur í góðum gír.
Nóttin hafði færst yfir afmikilli yfirvegun þegar Vertinn loksins hélt heimleiðis og lagði út á Reykjanesbrautina. Óhugur fór um mig að keyra þessa leið og kalla ég þó ekki allt ömmu mína. Vegaframkvæmdir eru víða á leiðinni sem leiða ökumenn í bugður og beygjur þvers og kruss og erfitt er oft að greina veginn í myrkrinu enda er leiðin óupplýst og ekki greið fyrir náttblinda sem lítið þekkja til. Ég þakka mínum sæla fyrir að þurfa ekki að aka þennan veg dag hvern og tel brýnt að lögð verði áhersla á að klára að tvöfalda hann hið fyrsta og setja ljósastaura með reglulegu millibili til að lýsa leiðina. Það eru greinilega fleiri vegir en Óshlíðin sem þurfa skjótar endurbætur til að tryggja öryggi vegfarenda. Við báðum þann sem öllu ræður um gæfu og gengi á leiðinni heim eins og sjá má á myndinni til hliðar og án efa hefur það skipt sköpum á ferðalagi mínu í nótt á Reykjanesbrautinni.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.