1.9.2007 | 12:49
Köttur út í mýri....
Köttur út í mýri....
Senn líkur þessu ævintýri okkar á eyjunni Rhodos í Grikklandi. Síðasti dagur ferðalagsins er runninn upp og ferðalangarnir sitja á hótelinu þegar þessi orð eru rituð og bíða þess að rútan komi sem ferjar þá inn á flugvöll. Það bíður flugvél á vegum Heimsferða sem ætlar að koma okkur á leiðarenda. Flugið er frekar langt og smá kvíði í hópnum yfir því að þurfa að sitja í þrengslunum ú vélinni í tæpar sex klukkustundir en það líður þó allt og fyrr en varir verðum við komin heim. Þessi tími er búinn að vera frábær og stóðst væntingar í alla staði. Hópurinn einstaklega samheldinn og góður enda allt skemmtilegasta fólkið sem ég þekki samankomið á einn og sama staðinn svo ekki var við öðru að búast en að allt gengi eins og í sögu.
Setti upp á sig stýri.........
Við leigðum bílaleigubíl í gær og keyrðum um eyjuna og skoðuðum það helsta sem þótti markvert. Brunað var á stórum Fiat um holt og hæðir og hélt ég um stund að útsendari frá Vegagerðinni á Vestfjörðum hefði verið sendur út af örkinni til að finna heppileg vegstæði fyrir vegina á þessari litlu eyju, sem stendur svo hnarrreist við Miðjarðarhafið, því vegirnir fóru í ótal bugður og beygur, upp hóla og hæðir. Ég hélt sem snöggvast að ég væri komin heim og væri að hlykkjast upp Hrafnseyrarheiðina á björtum sumardegi. Við stoppuðum í Lindos og fórum þar í sjóinn. Þar eru strendurnar þaktar gullnum skeljasandi og sjórinn kristaltær og smáfiskar synda allt um kring og gæla við kroppinn hér og þar og kitla sundgarpa notalega þegar marvaðinn er troðinn. Sjórinn var sjóðheitur og golan glettilega heit þegar ferðalangarnir busluðu í dámsamlega fallegri vík milli klettasylla og kóralrifja og var þetta var ævintýri líkast.
Úti er ævintýri........
Þessu ævintýri fer senn að ljúka og gott verður að koma heim eftir velheppnaða ferð. Það er alltaf gott að koma heim til að takast á við ný ævintýri sem bíða handan við hornið. Flestir fara beint vestur því vinna og skóli biður en Vertinn mun vera eitthvað áfram í höfuðborginni til að erindast eitt og annað því hitta þarf mann og annan út af Einarshúsinu. Ná þarf samningum við hina og þessa er varða næsta sumar og minna þarf á mikilvægi þess að Einarshúsið nái að vaxa og dafna í framtíðinni. Vinnan bak við barinn er aðeins brot af því sem þarf að inna af hendi til að koma Einarshúsi á koppinn. Næg verkefni svo Vertinum í Víkinni er ekki til setunnar boðið og stefnir ótrauð á vit nýrra ævintýra.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Gott er að vera á rhodos -- og þar var eitt af sjö undrum veraldar til forna --- og mikil saga þarna
Halldór Sigurðsson, 1.9.2007 kl. 13:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.