Riddarar hringborðsins heimsóttir

Við hlið RhodosborgarÍ gær var farið í hina mögnuðu Rhodosborg og gengið um örmjó stræti og torg. Borgin var reist á 14. öld og er umkringd stórum virkisveggjum sem staðið hafa um aldir og haldið verndarhendi yfir þessum ævagömlu fornminjum. Þarna er stórfenglegt um að litast og skrýtið að hugsa til þess að  riddarar víða úr Norður Evrópu skuli hafa safnast þarna saman og lagt undir sig þetta landsvæði og byggt heila borg. Allar götur eru lagðar smáu fjörugrjóti sem lagt er í allskonar munstur á víð og dreif. Kannski væri ráð að leggja fjörugrjót fyrir framan Einarshúsið að sið riddaranna forðum, því gatan þar fyrir framan skammar verulega upp á umhverfið í kring en þar hafa einstaklingar og fyrirtæki svo sannarlega unnið að þvi hörðum höndum að fegra umhverfið og lagt sinn metnað í að hafa huggulegt í kringum sig. Ég get ekki neitað því að Vertinn gerði sér vonir um að farið væri í að leggja gangstéttarhellur við húsið þetta árið en þolinmæðin þrautir vinnur allar og ég reyni að sýna stillingu eitthvað lengur. 

Allir voru gengnir upp að hnjám eftir að hafa arkað um þessar steinlögðu götur og upplifað liðna tíð. Andri bar höfuðverkinn sinn, sem hrellir hann æði oft, um stræti þessarar merku borgar og var því sæll að komast heim til að leggjast til hvílu. Hann naut sín samt mest allan tímann eins og við hin. Þegar kvölda tók fylltist borgin af iðandi mannlífi og mikil stemning myndaðist er  þúsundir manna liðuðust um göturnar til að sýna sig og sjá aðra. Allt hjálpast að til að gera þetta sem eftirminnilegast. Gamaldags lýsing á hlöðnum veggjunum vekur upp rómantískt andrúmsloft þegar skuggarnir læða sér um borgina þegar kvöldar og betlarar sitja raunamæddir og biðja um aura með sorgina í augunum. Lilja og Bryndís fundu svo til með þessu vesalings fólki að þær nánast létu aleigu sína af hendi rakna til koma þeim til hjálpar. Þær voru leiddar frá staðnum styrkri hendi eftir að þær voru búnar að henda nokkrum evrum í bolla og skálar sem grátbáðu þær um að gefa peninga til húsbænda sinna.  

Örmjóar götur gömlu  Rhodosborgar, sem nú eru full af sölubásum og verslunum,  bera með sér sögu fyrri alda og staðnað loftið inn á milli þessa mjóu stræta ber með sér keim riddara hringborðsins sem fóru með báli og brandi í nafni kristinnar trúar og höfðu m.a. aðsetur í Rhodos borg. Hringinn úr Hringadróttinssögu Tolkiens mátti sjá glampa og glitra er litið var inn um gættir gamalla hlaðinna herbergja er tilheyra þessum öldnum kastalabyggingum. Djásnið var kirfilega læst inn í nýtískuglerskáp en samt mátti finna fyrir þeim ógnarmætti sem það ber með sér. Litlu mátti muna að hringurinn næði tökum á Vertinum í Víkinni og fengi hana til að fjárfesta í sér og ná þar með að sá neikvæðum hugsunum í hugann og sópa í leiðinni á burt jákvæðum og skemmtilegum þankagangi. Hringnum fylgir illur máttur eins og menn vita og virðast ýmislegt vera sammerkt með hringnum úr Hringadróttinssögu og Bakkusi sjálfum, því báðir ná að dreifa illgresi í hugann og fá það til að spretta með ágætum. Ég lék á Djásnið og lét ekki blekkjast og sýndi sama hugrekki og hobbitinn Fróði gerði forðum er hann þurfti að bera hringinn á ystu nöf og bjarga heiminum frá glötun.  

Fróði gerði það þó ekki einsamall því hann átti góða að.......alveg eins og ég.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband