Tyrkneska gufubaðið.

Þá er tími til komin til að senda fréttir heim. Tyrkland var heimsótt í gær og gekk ferðin í alla staði vel. Dagurinn var tekinn eldsnemma og vaknað fyrir allar aldir. Fótaferðatíminn var mjög ókristilegur en við fórum með nokkrar Maríubænir og létum slag standa og mættum við rútuna okkar kl. 07:00 að staðartíma. Þá sofa Íslendingar á sínu græna eyra heima á Fróni enda er kl. 04:00 að morgni og þá dreyma menn eilífa rigningar og snjókomur. Ferja var tekin yfir á strendur litlu Asíu og sjóðheitur vindur blés á móti okkur er við stigum á land. Hitastigið var 45°C og þótti ferðalöngum fullheitt á köflum. Það góða við hitann var að kaupgleði okkar dvínaði til mikilla muna og litlu sem engu var eytt í þessu framandi landi. Leðurverksmiðja var heimsótt og valin voru módel úr salnum og var Þórunni kippt upp á svið og var hún klædd í leður frá toppi til táar. Hún stóð sig með prýði í módelstörfunum og erum við afar upp með okkur að hafa tyrkneskt módel með okkur í ferðinni. Söluóðir leðurkaupmenn höfðu örugglega haft spurnir af því að ætti leðurbuxur og fundu hjá sér brýna þörf fyrir að selja mér klæðnað úr leðri. Þeir ætluðu mig gjörsamlega að gleypa með húð og hári. Vertinn vill ekki láta gleypa sig einum bita svo lítið fór fyrir því að leðurbuxnadragtir yrðu endurnýjaðar. Farið var í skartgripaverslun og auðveldlega var hægt að prútta um gagnslaust glingur og Vertinn ber nú tyrkneskan hring á fingri með 25 eðalsteinum sem fékkst á góðu verði. Ég var hörð í viðskiptunum og fylltist eldmóði þegar mér var hugsað til Tyrkja Guddu og örlaga hennar á sínum tíma og gaf ég þessum Tyrkjum engan grið í viðureign okkar um verðið á hringnum og hafði betur að lokum. Markaðurinn var síðan sóttur heim með eitt þúsund verslunum af ýmsu tagi. Andra, Elsu, Þórunni, Lilju og Bryndísi tókst að kaupa sér fatnað sem gagnast þeim vel þegar þau koma heim og var dagurinn skemmtilegur og gaman var að koma á framandi slóðir þrátt fyrir brakandi blíðu og hita. Bandarískt flugmóðurskip var í höfn í Tyrklandi þakið þyrlum og Harrier flugvélum. Ég taldi næsta víst að það hefði lagt upp að bryggju til að tryggja öryggi Vertsins og hennar fylgdarliðs á meðan stoppað væri við í þessu landi sem liggur fyrir botni Miðjarðarhafs en kom þá í ljós að þarna voru á ferðinni bandarískir hermenn í afslöppun.  

Ég og Elsa virðumst vera bragðbestar af hópnum því moskítóflugur berjast um að bíta okkur á víxl. Þær bíta mig bara í vinstri fótinn og skipta bitin tugum frá hné og niðrúr. Blóðið virðist skipta um bragð eftir því niður hvorn fótinn það rennur. Jón Bjarni og Elsa fóru reyndar til læknisins vegna skordýrabita og fengu krem og töflur sem hjálpa eitthvað. Lilja sleppur ekki heldur við heimsóknir þessa óvelkomnu skordýra en Bryndís, Andri og Þórunn virðast vera frekar vond á bragðið og fá því nánast að vera í friði. Að öðru leiti gengur ferðin vel og allir eru mjög sáttir og sælir. Ekkert hefur komið uppá sem raskar ljómanum sem vakir yfir þessari sólarlandaferð og við erum alsæl í miðju ævintýrinu. 

Nú er síestan í algleymingi og menn eru að leggja sig eftir morgunsólbaðið og gera sig klára fyrir  sjóbað seinnipartinn. Ég kýs að leggja mig ekki og senda frekar fréttir heim. Þetta nefnist víst að fórna sér fyrir hópinn en ég tel það skildu mína að koma fregnum af okkur áleiðis heim. Annars læðist að mér syfja og augnlokin farin að þyngjast örlítið, ætli ég halli mér ekki í smá stund.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hiti og skógareldar, ertu ekki örugglega með slökkvitækið við hlið þér. Ég vara að hugsa til þín þegar hádegisfréttirnar sögðu frá því að allt skólendi væri logandi þarna í kringum þig. Það er ekki nema von að hitamælirinn stigi hjá þér. Hér vomir rigningin yfir og 10 stiga hiti.

 hafið það gott

Halla Signý

Halla Signy (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 13:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband