Sjóheitt og seiðandi

tvær blómarósirEnn og aftur berast sjóðheitar fréttir frá útlöndum. Ekki er um neitt eldheitt slúður að ræða enda ekkert tilefni til slíkra sögusagna. Hér er hreint út sagt æðislegt að vera og allir njóta sín til fulls. Það hefur komið á óvart hve gómsæt og girnileg við virðumst vera því flugur berjast um að bíta okkur hér og þar um kroppinn til að gæða sér á bragðgóðum Vestfirðingum. Þær fréttir hafa borist að við þykjum kostafæða hjá þessum litlu og óvinsælu moskítóflugum. Ég var að gera mér vonir um að þeim geðjaðist ekki að alcohól fríu blóði og að þær myndu láta mig í friði þetta sinnið, en það virðist vera öðru nær. Óvirkar alkóhól-moskító-flugur virðast vera á sveimi er kvöldar líkt og aðrar flugur af sömu ætt sem sötra með áfergju allt blóð sem þær mögulega geta nálgast. Við erum búin að koma okkur upp miklu safni af allskyns flugnafælum í formi krema sem bera á fyrir og eftir bit en allt kemur fyrir ekki og allt virðist þetta virka hvert á móti öðru því við erum útstungin þrátt fyrir allt. Fólk er reyndar misviðkvæmt og sumir fá aðeins litla rauðleita díla, meðan aðrir hlaupa upp og bólguhnútar myndast víðsvegar um kroppinn er flugan hefur lokið sér af við blóðsöfnun. 

Sjórinn hér á Grikklandi er heitur og góður. Hér við hótelið er steinaströnd og stutt að labba þangað til Þrjár blómarósirað virða fyrir sér úfið Miðjarðarhafið. Vertinn vaggaði niður að brimsorfinni fjörunni og stakk sér til sunds í gær. Það var haugasjór og aldan veltist um og lék sér að því að hnoðast með mig fram og aftur. Ég reyndi að verjast ágangi Ægis en hann hló sínum þunga hlátri er hann lét brimið frussast í andlitið á mér og þótti það mikið sjónarspil að fylgjast með okkar viðureign. Ægir fór með sigur af hólmi enda hafði hann Öldu sér til halds og trausts í þessari orrustu okkar. Mér var skellt upp í fjöru með tilþrifum þegar þau fengu nóg af fíflaganginum í mér og losuðu þau mig úr faðmi hafsins í einu hendingskasti. Þau eru samt ekki laus við mig því ég á eftir að fara í sjóinn aftur og aftur því þetta var æðislega gaman og við skemmtum okkur hið besta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband