19.8.2007 | 15:51
Fréttir að utan
Þá er loksins biðin á enda og draumurinn orðin að veruleika. Vertinn í Víkinni flaug með Boing vél flugfélagsins Primera til Rhodos ásamt allri fjölskyldunni sinni og meiru til í gær með það meginmarkmið í farteskinu að njóta lífsins, hafa það gott og baða sig í sólinni sem skín svo óspart á menn hér ytra. Á myndinni má sjá ferðalanganna fulla af tilhlökkun fyrir utanlandsferðinni.
Snemma var risið úr rekkju í gærmorgunn og höfuðborgin svaf eins og engill þegar við lögðum upp á vit ævintýranna. Reykjavík sló þó sínum taktfasta takti hægt og örugglega er hún fylgdi íbúum sínum heim eftir skemmtanahald næturinnar. Stefnan var tekin á Keflavikurflugvöll og fram hjá Bolungarvík bak Njarðvík, og glögglega mátti heyra háværar hrotur í Gunnu Jóns vinkonu minni svo undirtók í Suðurnesjum þegar við keyrðum þar framhjá. Bolvíkingar hafa verið iðnir við að flytja búferlum á Suðurnesin og hefur Njarðvík hvað mest orðið fyrir barðinu á þessum brottfluttu Bolvíkingum sem leita sér að samastað fjarri Vestfjörðum í leit að hæli.
Leifur Eiríksson var varla vaknaður þegar við komum á flugstöðina um kl. fimm í gærmorgun. Hann nuddaði stírurnar úr augunum þegar hann sá að Vertinn í Víkinni var kominn alla þessa leið til að hitta hann og tók mér opnum örmum. Hann gat boðið upp á ýmsan varning sem hægt var að kaupa á afar góðum kjörum og að sjálfsögðu sætti Vertinn lagi og verslaði sér ilmkrem og fegrunarvörur sem eiga gera útlit og atgerfi kvenna sem best úr garði. Svokallað sparsl, sem dreifist yfir andlitið í misstórum lögum þótti nauðsynlegt að eiga til að fela stærstu misfellurnar í andlitinu og er ég nú þess fullviss eftir að hafa eignast allar þessar munaðarvörur að lífið verði langt um unaðslegra en það hefur verið til þessa.
Flugferðin gekk eins og í sögu og sólin brosti sínu geislandi brosi til flugfarþega og lét geisla sína dansa gríska dansa á vængjum vélarinnar með tilþrifum. Við vorum lent um kl. fjögur að staðartíma en þá tók á móti okkur blíður blær og brosandi fólk, hér er mikið af brosandi fólki og glaðværu. Hitinn lék sér við pálmatré og annan gróður sem vex hér undir yfir og allt um kring. Þurrkar hafa verið ríkjandi hér í sumar og gróðrinum veitir ekki af smá vökvun en ég beini þeim tilmælum þeirra sem sjá um að vökva "móðir jörð" að biða með að ausa yfir Grikkland rigningu rétt á meðan að ég er hér ytra. Hótelið er fínt og garðurinn enn betri eins og glögglega má sjá á fólkinu mínu sem situr makindalega í hótelgarðinum á Hotel Forum.
Dagurinn í dag hefur farið í að skoða nánasta umhverfi og liggja í sólinni í garðinum við hótelið og hella í sig límonaði á börum víðs vegar um nágrennið. Tánum var dýft í miðjarðahafið eitt augnablik og sjávarlöðrið lofaði að taka mig ekki með sér á haf út þegar ég kæmi og tæki sundspretti af minni alkunnu snilli. Það er öldugangur á köflum og öldurnar nokkuð hrekkjóttar þegar óþekktin kemur upp í þeim svo betra er að hafa varann á.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.