29.7.2007 | 17:16
Mamma
Mamma mín var fædd þennan dag árið 1930 og er þvi 77 ára gömul í dag. Hún er spræk og hress og þökk sé guði fyrir það. Hún bakar og eldar og hugsar um garðinn sinn og dekrar litla hundinn sinn eins og hún lifandi getur. Hún og pabbi eru fyrirmyndar hjón og eru ánægð hvort með annað. Önnur hjón mega líka teljast ágætis fyrirmynd en við hjónin eigum 18 ára brúðkaupsafmæli í dag. Það þykir trúlega tíðindum sæta að fólk sé í hjónabandi samfleytt í 18 ár og fer trúlega að heyra til undantekninga. Við giftum okkur á afmælisdegi mömmu, árið sem hún Elsa fæddist. Þar vorum við nokkuð útsjónarsöm, því það er trúlega ástæða þess að við munum eftir deginum frá ári til árs. Trúlega gerum við okkur einhvern dagamun. Kannski förum við út að borða og sláum öllu upp í kæruleysi.
Mamma var dóttir hjónanna Auðar Sigríðar Hjálmarsdóttur og Árna Elíassonar en hún ólst um hjá móðurafa sínum og ömmu, þeim Guðbjörgu Sigurðardóttur og Hjálmari Þorsteinssyni. Pabbi hennar bjó alla mína tíð í næsta húsi við okkur og gekk upp með garðinum okkar á hverjum degi og hafði aldrei fyrir því að kasta á okkur systkinin kveðju, þó vorum við einu barnabörnin hans og mamma hans einkadóttir. Ég vissi ekki fyrr en ég var orðin stálpuð að þessi ókunni maður væri afi minn. Hann bar þann bagga fullan af afskiptaleysi fyrir okkur yfir móðuna miklu en ég vill þó eiga þá von í brjósti að hann hafi fylgst með okkur úr fjarlægð og haft velferð okkar að leiðarljósi í lífinu sínu. Svona lagað á auðvita að kenna okkur hinum að elska þá sem standa okkur næst og nýta tímann vel með þeim sem okkur þykir vænt um.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Heyr heyr til hamingju með mömmu þína.
Magga Lilja (IP-tala skráð) 29.7.2007 kl. 18:18
Sæl Ragna mín
Berðu mömmu þinni síðbúna afmæliskveðju frá mér. Mikið óskaplega ertu rík að eiga foreldra á lífi.
Kristín Hálfdánsdóttir (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 11:03
Kveðja og þakkir til Bolvíkinga.
Eg færi ykkur mínar bestu kveðjur á þessum tímamótum. Eg vil þakka Elsu stóru systur minni og Magga frábærar viðtökur og gestrisni á Sjómannadagshelginni nú í sumar í Bolungarvík. Einnig vil eg þakka góðar samverustundir með þeim í Reykjavík og víðar nú í sumar. Kær kveðja Gísli Hjálmar Ólafsson og fl.
Gísli Hjálmar Ólafsson (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 21:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.