27.7.2007 | 23:32
Húsið
Þetta hús heldur mér í helgreipum og ég kemst hvorki lönd né strönd. Hér er ég búin að sitja pikkföst síðustu daga og haga mér eins og fyrirmyndar Vert. Bugta mig og beygi þegar það á við og brosi svo sakleysisbrosi þegar þess er krafist af gestum mínum. Allar fara svo héðan út með sögu hússins inngreypta í hugarheiminn því hún verður að komast vel til skila og allir verða að heyra þá sögu sorgar og gleði sem fylgir þessu magnaða húsi. Siðastu fúaspýtunni var skipt út í gær fyrir nýja svo nú er nýtt fótstykki allan hringinn og húsið stendur því styrkum fótum. Nú mun það standa og aldir og eilífð og líta eftir fólkinu í bænum. Á myndinni má sjá hagleikssmiðinn setja síðustu plötuna á Einarshús og þá er bara eftir að klæða húsið upp í kjöl og hvitt með járnklæðningu líkt og forðum. Ég hleyp út við og við í kvöldið og tíni sprek sem til hafa fallið við endurbæturnar og set í kamínuna. Það væri synd að segja að hlutirnir séu ekki nýttir til hins ýtrasta. Það er farið að rökkva og kertaljósin njóta sín vel og Gunna er mætt. Hún er konan sem kyndir ofninn minn og kveikir á kertunum mínum og heldur loganum á lífi.
Það er búið að vera mikið að gera í dag og fjöldinn allur af fólki hefur komið í heimsókn. Ég þurfti að bera fram súpu í gríð og erg í hádeginu og aspassúpan þótti bragðgóð. Í gær var grjónagrautur og slátur og ekki var annað að sjá en að fólk kynni vel að meta þann þjóðlega og eftirsótta rétt. Ljúffeng sjáfarréttasúpa var einnig höfð á boðstólnum fyrir þá sem vildu eitthvað annað en grautinn góða og tvær vinkonur þáðu þær trakteringar og drukku eðalhvítvín með og nutu þess að vera í fríi og lifa lífinu. Mikill erill var í kaffi og kökur í dag og ég vissi um stund ekki hvaðan á mig stæði veðrið því atgangurinn í það sem er á boðstólum hér var þvílíkur. Ein hefðarfrú kom í kvöldmat og hafði sonardætur sína með sér og einn lítinn ömmustrák. Hildur Einarsdóttir hljóp við fót í Einarshúsi er hún var lítil hnáta og fram á fullorðinsár en hún er dóttir Einars Guðfinnssonar og Elísabetar Hjaltadóttur. Hún kann margar sögur úr húsinu og hefur yndi af því að segja frá gömlu góðu dögunum.
Jón Bjarni og Lilja eru farin heim og búin að koma sér vel fyrir við sjónvarpið. Það er ekki frítt við að ég öfundi þau örlítið af kósýheitunum. En það er binding að eiga og reka svona fyrirtæki. Ég ætla að njóta samverunnar við fjölskylduna mína úti á Grikklandi. Þar ætla ég ekki að leiða hugann að Einarshúsi eða því sem þar fer fram. Þá munu vinnuhjúin mín taka yfir og ráða það ríkjum meðan ég er í burtu.
Það dimmir ótrúlega hratt og nú hellist rigningin yfir litla bæinn minn. Þokan hangir yfir fjöllunum og gráminn leggst yfir eins og slæða. Nóttin bíður handan við Óshyrnuna og leitar færis að vitja okkar og leiða Bolvíkinga til hvílu. Vonandi sofna þó ekki allir, vonandi kemur einhver í Kjallarann í leit að köldum og freiðandi kolamola úr kolageymslunni. Ef enginn kemur, þá setjum við Gunna slagbrandinn snemma fyrir og förum bara í háttinn.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.