The Pitchfork Rebellion í Kjallaranum

Föstudagskvöldið 6. júli mun The Pitchfork Rebellion eða " Heykvíslauppreisnin" leika í Kjallaranum í Einarshúsi. Þau hafa áður sótt gesti Einarshúss heim og kom það mér mjög á óvart hversu góð þau eru. Fanney syngur eins og engill og Héðinn, sem kallar sig Kisa, leikur undir á gítar af mikilli færni.  Það er einstaklega ljúft að hlusta á þau og enginn verður svikinn af því að eiga kvöldstund með þessu frábæra tónlistarfólki. Héðinn er barnabarn Völu Báru heitinnar og hún mun án efa hlusta með athygli á strákinn sinn spila og syngja fyrir okkur hin. Tónleikarnir eru í boði Vertsins í Víkinni.

Á laugardagskvöld verður einkasamkvæmi í Einarshúsi og báðir salir hafa verið leigðir út en Kjallarinn mun verða opinn frá kl. 22:30 og lítill fugl hefur hvíslað að mér að fólk ætli að fjölmenna. Hver veit nema ég geti reddað trúbador. Þeir liggja reyndar ekki á lausu þessa dagana en við sjáum til hvað setur.

Á sunnudag verður sjávarréttahlaðborð og pantanir eru þegar farnar að berast. Það er vissara að panta með fyrirvara ef þið viljið fá eitthvað gott í gogginn.

Þar fyrir utan eru allir velkomnir í kaffi og meðþví. Nóg er að gera og ég kvarta ekki.

HeydalurOkkur tókst að bregða okkur af bæ einn dag í vikunni og fórum í Ævintýradalinn í Heydal. Það var gott að taka sér smá frí frá erli dagsins og þar er gott að vera. Myndin af okkur mæðgunum er tekin í náttúrulaug sem þar sprettur upp úr jörðinni í öllu sínu veldi og bleytti í okkur stelpunum og ekki veitti af því eftir allan þurrkinn í sumar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Já þau eru skemmtileg og þeir sem missa af föstudagskvöldinu í Einarshúsi eða vilja heyra meira geta notið tónlistar þeirra á Langa Manga kvöldið eftir.  Annars væri ekki vitlaust að skella sér alla þessa 14 km til Bolungarvíkur að kaupa sultu eða annað á markaðsdeginum á morgun, þá komum við örugglega í Einarshús.

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 6.7.2007 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband