1.7.2007 | 00:39
Hrotið við eldinn
Enn einn sólardagurinn hefur runnið sitt skeið á enda. Sú brakandi blíða sem hér er dag eftir dag er svo sannarlega boðin velkomin með bros á vör. Ég held þó að öll þessi sól taki úr mér smá mátt því í gærkvöldi sveif á mig þvílíkur svefnhöfgi að ég sá mér ekki annan kost vænstan en að steinsofna í koníaksstofunni fínu og þar hraut ég eins og gamall drykkjurútur langt út í nóttina. Enginn þorði að styggja sofandi Vertinn og allir héldu sig frammi enda ekki líft útaf háværum hrotunum í mér. Ylurinn frá kamínunni sendi minn enn lengra inn í draumaheima þar sem ég vissi hvorki í þennan heim né annan. Gunna stóð vaktina eins og svo oft áður og það var eins gott því ekki var ég til stórræðanna. Ég hefði trúlega getað gripið inn í ef eitthvað stórfenglegt hefði komið upp á,ef ég hefði getað vaknað á annað borð. Allt virtist þetta þó ganga þokkalega. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem ég sofna á vaktinni og sef á verðinum en mér virðist líðast þetta trekk í trekk. Sjóari kom í súpu í hádeginu og sagðist hafa séð mig sofa svo vært kvöldið áður og hann vildi ekki vekja Vertinn enda engin ástæða til þess. Ég er viss um það að hvergi í veröldinni er boðið upp á fyrsta flokks hrotur í bland við göruga drykki á spottprís. Ég er alltaf að reyna að leiða ykkur fyrir sjónir hversu heppin þið eruð ef þið komið í Kjallarann.
Ég var varla vöknuð í morgun þegar Hermann og Rian vildu kaupa sér kaffi og tertusneið. Þau eru frá Amsterdam og eru hér á stórri og glæsilegri skútu í höfninni. Það var reglulega gaman að tala við þau. Ég var eins og aðalpersónan í slúðurblaði séð og heyrt þar sem ég stökk léttfætt á pínupilsi um borð í þessa glæsiskútu. Við sátum í morgunsólinni fyrir utan Einarshúsið og drukkum kaffi og spjölluðum. Hermann sagði mig ríka konu að eiga þetta fallega útsýni sem ég hefði af tröppum hússins. Óshyrnuna, bryggjuna, bátana og útsýni inn allt Ísafjarðardjúp. Það væri ekki allt að vera ríkur af peningum. Þetta er satt hjá honum en stundum erum við svo upptekin við eitthvað sem engu máli skiptir að við komum ekki auga á aðalatriðin í lífinu. Þetta er auðvita bara gleymska og ekkert annað. Ég má þó teljast mjög heppin því allt hefur leikið í höndunum á mér og ég hef getað gert allt sem ég vil og hef ætlað mér. Auðvita tekur maður smá rispur annað slagið og blæs út eins og gengur en það er eðlilegt og nauðsynlegt að standa á sínu og láta ekki vaða yfir sig.
Ein gömul bekkjarsystir mín kom til að hlaupa í Óshlíðina en hún er óttarlegur hlaupagikkur. Við vorum miklir mátar á árum áður. Að sjálfsögðu var tekin mynd af okkur við stóra grenitréð í garðinum við Einarshúsið. Inga María er miklu minni en ég en það segir sko alls ekki allt því ég er ekkert síður stelpuleg en hún. Látið því ekki hæðarmismun villa um fyrir ykkur. Hingað kíkti líka í kaffi í dag maður sem bjó hér fyrir mörgum árum og var í löggunni hér um það leyti sem ég fékk bílpróf. Ég notaði tækifærið og skammaði hann fyrir að taka mig á teppið á afmælisdaginn minn þegar ég var 17 ára fyrir það eitt að taka litla handbremsubeygju við gömlu Einarsbúð. Hann bar af sér allar sakir en þetta atvik hefur setið í minningunni alla tíð. Ég lærði það á þessari yfirsjón minni að taka ekki beygjurnar á handbremsunni en mér þótti þó tilhlýðilegt að láta þennan gamla löggumann borga tvöfalt fyrir kaffibollann og tel ég að nú séum við kvitt.
Ég sitt núna uppi í Einarshúsi eins og í gær og blogga. Ég heyri að einhverjir eru mættir niðri. Ætli ég verði ekki að sýna mig og sjá aðra. Ég vona að ég geti haldið mér vakandi í kvöld. Ég vona að það verði skemmtilegt í Kjallaranum í nótt, ég vona að ég verði jafnheppin á morgun og ég var í dag. Ég vona að ég geti notið Óshyrnu, bryggjunnar og bátanna og útsýnisins inn Ísafjarðardjúps á morgun eins og i dag. Ég vona að allir sem mér þykir vænt um líti eftir mér á morgun líkt og þeir hafa gert hingað til. Ég vona að þú haldir áfram að lesa hugleiðingar mínar. Ég vona að við eigum öll góða nótt.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Sæl Ragna það er nú í lagi að halla sér aðeins stöku sinnum. Annars langar mig að þakka fyrir okkur kaffið var alveg glimrandi gott og Einarshús alveg frábært. Til hamingju með soninn þau eru alltof fljótt orðin fullorðin þessi börn. Kv Erla
Erla (IP-tala skráð) 1.7.2007 kl. 21:48
Já Ragna mín ég held áfram að lesa og fylgjast með þér
. Og svo verð ég að fara að koma og fá mér súpu og prófa heita reitinn
Katrín, 1.7.2007 kl. 23:56
Alltaf þú getur ekki látið mig brosa þegar ég lít hér við kæri VERT, gleðilegann enn einn sólardag.
guja (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 10:19
Blessuð Ragna.
Það væri stórsniðugt og mjög vel þegið ef þú myndir setja inn dagskránna í Kjallaranum hingað inn t.d. miðvikudaginn fyrir helgi, þ.e. ef það er eitthvað um að vera. Ágætt að geta kíkt hingað ef maður nennir ekki niðrí búð. ;).
P.S. Er langt í næstu kjallarakeppni?? :)
Ilmur (IP-tala skráð) 5.7.2007 kl. 21:59
Sæl og blessuð Ilmur. Ég reyndi að setja inn dagskrá helgarinnar. Gleymdi að minnast á gúllassúpuna sem verður í hádeginu í dag. Kjallarakeppnin byrjar þegar haustar og húmar að og tel ég hreint upplagt að þú verðir fyrsti spyrill. Líst þér ekki ljómandi vel á það??
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 6.7.2007 kl. 11:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.