Sólarkoss á kalda klettavör

Enn og aftur er ég sest við tölvuna mína í Einarshúsinu og skrifa ykkur nokkrar línur. Óshólavitinn er hreinlega rauðglóandi í sólargeislunum sem hafa leikið við okkur hér í dag. Sólin hyggst nú taka sér sæti við sjóndeildarhring innan skamms og kveður okkur með því að kyssa Þuríði beint á ískalda klettavör. Dagurinn í dag var heitur og notalegur og meira að segja skugginn iljaði og greip mig í fangið þegar hann fékk færi á. Þetta eru góðir dagar og hvergi betra að vera í svona veðri en einmitt hér.

Þýskur teiknari með bláa húfuÍ gærkvöldi komu vinkonur mínar frá þýskalandi sem dvalið hafa hér um hríð til að sinna listsköpun sinni. Ein þeirra var að mála gesti og gangandi á kránni um síðustu helgi og gerði það vel. Ég gerði stelpunum smágreiða og fékk að launum teikningu af sjálfri mér og gærkvöldið fór í fyrirsætustörf að mestu.  Myndin var framúrskarandi fín og flott enda fyrirmyndin til fyrirmyndar en ég held þó að ég hefði ekki verið gott módel því ég er ekki nógu meðfærileg til slíks brúks. Á myndinni má sjá þrjá þjóðverja að finna út hvernig best sé að koma andliti Vertsins sem haganlegast niður á blað. Hárið var reyndar það fyrirferðamikið að myndin náði yfir á tvö blöð en það er önnur saga.

Vertinn varð aðsjálfsögðu að vera fram á nótt við hlið vinnuhjúanna sinna en þær Elsa og Gunna voru á vaktinni með mér. Í nógu var að snúast við að undirbúa sjávarréttahlaðborðið sem ég ætla að hafa á helgum í sumar. Ég er búin að koma því þannig fyrir að ég er bundin hér í húsinu í báða skó og kemst hvorki lönd né strönd. Sagt er að einhversstaðar verði vondir að vera og það er alveg eins gott að ég sé hér í húsinu í reyðileysi á vappi eins og hvar annarsstaðar. Mér finnst gaman að vera að stússa í þessu. Ótrúlegur reytingur fólks kemur hér inn og fær sér kökusneið eða súpu og ég er í raun undrandi yfir þessu öllu saman.

SjávarréttahlaðborðSjávarréttahlaðborðið var frábært. Vertinn er búin að vinna að undirbúningi ásamt Guðlaugu, Gunnu og Elsu í allan dag og það gekk í alla staði ljómandi vel. Hátt á þriðja tug manna kom að borða sem er nokkuð gott ef miðað er við þetta góða grillveður sem var í dag. Steinbítspaté, laxapaté, grafin lúða og lax í bland við framúrskarandi fiskrétti voru á boðstólnum og féll þetta gúmmelaði vel í mannskapinn. Ekki má svo gleyma heimabakaða rúgbrauðinu hennar Guðlaugar og fiskréttinum hennar Gunnu sem bragðast svo ótrúlega vel. Ég er með Guðlaugu í trogi á þorrablótinu og vissi því vel hverning rúgbrauðið hennar bragðast og það réð úrslitum þegar ég var að ráða í stöðu smurbrauðsdömu í Einarshúsið. Á myndinni hér til hliðar má sjá hluta af sjávarréttahlaðborðinu. Á myndinni má sjá sjóara renna til fiskjar á bátnum sínum og þeir njóta sín einnig sem fínasta borðskraut í leiðinni.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband