Einarshús á þjóðhátíðardaginn

Þjóðhátiðardagurinn er væntanlegur og mikið um að vera í bænum að vanda. Vertinn verður með dýrindis kaffihlaðborð og opnar í leiðinni sýningu á gömlum myndum Lárusar Benediktssonar sem mun verða varpað upp á skjáinn í Kjallaranum í sumar fyrir gesti og gangandi. Lárus hefur verið að safna gömlum myndum af húsum, bátum og ýmsu fleira efni tengdu Bolungarvík í tíu ár og á orðin stórt safn mynda sem einstklega skemmtilegt er að skoða.   

Kjötsúpan sló í gegn í hádeginu í dag og húsið fylltist enda var ég búin að lofa bragðgóðri súpu sem myndi kitla bragðlaukanna. Ég stend venjulega við það sem ég segi. Óveðursský skaut upp kollinum sem setti Vertinn út af laginu um stund. Bolungarvíkurkaupstaður auglýsir dagskrá þjóðhátíðardagsins í dreifibréfi sem sent er í hvert hús og notar tækifærið að auglýsa viðburði hjá samkeppnisaðila mínum í leiðinni. Það er súrt að þurfa að reka fyrirtæki í slíku umhverfi og mér féllust hendur eitt augnablik.  Litlu munaði að ég semdi við Finnboga Bernódusson í Mjöllni og fengi hann til að smíða fyrir mig svo stór hjól að þau gætu passað undir Einarshúsið svo ég gæti tryllað því í burtu ásamt öllu mínu hafurtaski en ég veit að það myndi ekkert þýða að biðja Finnboga slíkrar bónar því hann vill hafa mig hér í bænum. Hann hefur á mér miklar mætur og virðir mig og það sem ég er að gera enda ríkir gagnkvæm virðing okkar á milli. Sem betur fer eru svo margir í Víkinni fögru sem eru  traustir þegar á reynir og styðja við bakið á mér og leiða mig styrkri hendi þegar blæs á móti og það er ástæðan fyrir því að hér hef ég fest mínar rætur.  

En maður brosir í gegnum tárin og heldur áfram enda ekkert annað að gera. Ég reyni að hafa það hugfast að bros getur dimmu í dagsljós breytt.  Ég verð aftur komin með sól í sinni þegar ég blogga næst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eg hangi afturí ef Finnbogi getur! Ja einhvern tíman hefði einhvað verið sagt!!!!!!!

Guðjon Magnússon (IP-tala skráð) 16.6.2007 kl. 00:24

2 identicon

Sæl Ragna þú stendur nú svona smáræði af þér þú hefur nú staðið annað eins af þér.  Blása svolítið kröftuglega og setja síðan upp brosið. Gangi þér allt í haginn. KV Erla V.

Erla (IP-tala skráð) 16.6.2007 kl. 16:20

3 identicon

Hæhæ komin aftur eftir skemmtilegt ferðalag í úttlöndum.

Annars þetta með dreifibréfið...voru auglýsingar í því ekki aðgengilegar fyrir alla?  Væntanlega hafa þeir sem fengu auglýsingu í dreifibréfi sem er kostað af sjóði bæjarbúa þurft að borga eitthvað fyrir brúsann eða hvað?

p.s sendu inn uppskrift af kjötsúpunni

Kveðja Auður.

Auður (IP-tala skráð) 16.6.2007 kl. 17:13

4 identicon

Bíddu nú við.  Fékkst þú ekki Einarshúsið á slikk, niðurfelld fasteignagjöld og helling af opinberum styrkjum.  Það er eðlilegt að þú viljir meiri stuðning frá bænum eða hvað, þú hefur fengið allt meðan aðrir fá ekkert.  Hættu þessu væli bara og hugsaðu um það sem þú ert að gera, ekki hvað aðrir gera.

Jón Jónsson (IP-tala skráð) 21.6.2007 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband