Stúlkan sem starir á hafið

Ég er stúlkan sem starir á hafið. Hér sit ég við gluggann á Einarshúsi og horfi hugsi inn Ísafjarðardjúpið. Gamlir trébátar vagga við Lækjarbryggjuna sem blasir við mér út um gluggann og taktfastar bylgjur þeirra bærast á haffletinum. Smábátarnir koma einn af öðrum af sjónum og sjómenn í sjóstökkum skælbrosa yfir aflabrögðum dagsins. Mávurinn, Múkkinn og Vargurinn sitja upp á þakinu hjá Einari mínum í Olís og bíða færis að krækja sér í innyfli og annað gómsætt slor og fuglagargið hljómar líkt og óratóría eftir Atla Má. Óshólavitinn sést í fjarlægð og hann er alltaf jafn traustur og tryggur enda vakir hann yfir bátunum sem taka stefnuna um öldur Ægis hér í nágrenninu og vísar þeim leiðina heim. Það er gott að eiga einhvern góðan að sem vísar manni leiðina heim í öryggið og skjólið. Óshólavitinn hefur án efa verið ósáttur við Óshlíðina á stundum þegar hún hefur látið urð og grjót hendast niður fjallshlíðarnar sínar í æðiskasti, því oft hefur farið illa. Það er þó undravert hversu margir hafa sloppið með skrekkinn eftir glímu sína við Óshlíð og er þar trúlega að þakka árvökum augum Þuríðar Sundafyllis landnámskonunni okkar sem er vakin og sofin í kletti sínum og heldur verndarhendi yfir vegfarendum.   

 

Vermaðurinn og vertinnÉg fór í verstöðina Ósvör í dag og hitti vermanninn og fanggæsluna hans. Mikill gestagangur er búinn að vera hjá þeim undanfarið og mikið um að vera. Talið er að um sjö þúsund manns heimsæki Ósvör á hverju sumri og ég gerði mig ánægða með að fá 10% þeirra til mín í kaffi. Hnallþórurnar sem ég hef á boðstólnum eru alveg gríðarlega góðar og ég kræki mér í tertusneið við og við og set þá með henni mikinn rjóma. Ætli ég verði ekki orðin afmynduð af spiki í haust eftir sumarið en það væri ekki gott ef ég myndi líta út eins og strengdur köttur í sólarfötunum mínum úti á Grikklandi. Það skildi þá aldrei vera að ég þyrfti að láta sauma á mig sundföt í Seglagerðinni Ægi sem pössuðu á mig svo ég geti spókað mig á sólríkum sólarströndum. Þetta er auðvita bara sagt í gríni eins og svo margt annað sem ég læt frá mér fara þessa dagana, vikurnar og mánuðina. Allir segja að ég megi bæta aðeins á mig nokkrum kílóum en mér finnst ég svo fín svona horuð og rengluleg.  

 

Lítill karl kom á kaffihúsið í dag en það er smápjakkur sem Lilja passar á daginn og heitir Guðmundur. Lítill karlÞessi litli herramaður kallar mig Rögnu ömmu eins og ekkert sé sjálfsagðara og ég tek því eins og hverju öðru hundsbiti í hæl. Vonandi rennur upp sá dagur eftir mörg, mörg ár að blessuð börnin mín geri mig að ömmu. Tilhugsunin um að fá lítið undurfallegt, saklaus og þægt kríli upp í hendurnar og gera það spólvitlaust af óþekkt og geta svo skilað því til baka þegar ég er búin að spilla því nægjanlega mikið er nokkuð sem ég væri alveg til í að upplifa. 

Ég bókaði hópa í mat hægri vinstri í dag sem ætla sér í óvissuferð til Íslands í sumar. Skipstjórinn á Ramónu siglir með ferðamenn inn í Grunnavík og rekur þar ferðaþjónustu ásamt konu sinni og við vinnum saman enda er gott að vinna með góðu fólki og mjög gaman að taka þátt í að skipuleggja eitthvað skemmtilegt fyrir ferðamenn. Ég finn mig í þessu starfi á hverjum degi og mér finnst ég vera svo heppin að geta unnið við það sem mér finnst svo áhugavert og skemmtilegt. 

Ég þarf reyndar að fara að spjalla við vinnuveitanda minn, sjálfanVertinn í Víkinni, undir fjögur augu fljótlega og tala við hana með tveimur hrútshornum ekki seinna en strax og sína henni í leiðinni í tvo heimana og láta hana vita í eitt skipti fyrir öll hvar Davíð keypti ölið...............því mig sárvantar hærri laun.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband