Dánarfregnir og jarðafarir

Þegar aldurinn færist yfir virðast jarðafarir taka sífellt meiri tíma úr lífinu. Nú verður maður að eiga sérstakar jarðafarabuxur sem brúka verður í slíkum tilgangi og eru þær teknar út úr fataskápnum í æ ríkara mæli eftir því sem árin líða. Í dag fór ég með pabba í jarðaför því Gunnar Halldórsson  góðvinur hans og félagi var til moldar  borinn í Hólskirkju og þar með er enn einn mæti og merki Bolvíkingurinn fallinn frá.  Hver og einn setur svo mikinn svip á svona lítið samfélag og það er eftirsjá í öllum sem hverfa héðan á braut. 

 

Húmar að kveldi, hljóðnar dagsins ys,

hnígur að ægi gullið röðulblys.

Vanga minn strýkur blærinn blíðri hönd,

og báran kveður, vögguljóð við fjarðarströnd.

 

Annar höfðingi lést á dögunum eftir hjartauppskurð. Hjörtur Jónsson var lengi bakari á Flateyri og landeigandi í Dýrafirði og hefur leigt okkur land undir sumarbústaðinn okkar, Hólakot sem stendur í Núpsdal og er i landi Klukkulands.  Við náðum að kasta á Hjört kveðju um daginn þegar við vorum í höfuðborginni en þá var verið að undirbúa hann undir uppskurðinn en hann lá þá á sama sjúkrahúsi og tengdapabbi. Sú minning geymist alla tíð og gott að hafa getað sagt bless við þennan prýðispilt.

 

Syngdu mig inn í svefninn ljúfi blær.

Sorgmæddu hjarta er hvíldin jafnan vær.

Draumgyðjan ljúfa, ljá mér vinarhönd,

og leið mig um þín töfraglæstu friðarlönd.

 

Svona fallega orti Jón frá Ljárskógum.

Þegar ég sat með honum pabba mínum í kirkjunni og hlustaði á séra Döllu flytja kveðjuorðin til tengdaföður síns, hugsaði ég um hversu mikil gæfumanneskja ég væri að eiga foreldra sem stjana við mig eins og nýútsprungna blómarós. Ekki öðlast þó allar blómarósir þeirrar lífsins ánægju eins og ég að fá að vera til og blómstra og dafna í rósabeðinu meðal þeirra sem þeim þykir vænt um. Blómarósin á næsta bæ við sumarhúsið mitt í Dýrafirði hefur fölnað og fellt sín rósrauðu blöð sem voru svo rétt nýútsprungin. Guðbjört Lóa fékk ekki lengur það ljós sem þurfti til að halda  henni teinréttri meðal blómstrandi túlípana og nellika og hún skítur nú sterkum rótum sínum í aldingarðinum fjölskrúðunga á himnanna hæðum.

Lífið er oft svo óréttlátt en við fáum víst engu um það ráðið. Við eigum að taka fagnandi hverjum degi sem við getum verið með okkar nánustu því það er jú það sem mestu máli skiptir í lífinu.

Grillað var í kvöld á nýja grillið og smakkaðist maturinn með afbrigðum vel. Vertinn bar sig mannalega við grillið og reiddi fram kræsingar af öllum toga enda alvanur grillmeistari. Jón Bjarni átti að sjálfsögðu að standa við grillið i kvöld en vinna kallar eins og svo oft áður. Byssubardagi var háður í næsta firði í nótt og trúlega þarf að vinna eitthvað við það mál. Hákon Seljan nágranni minn var boðinn í mat en hann er nú í óða önn að pakka sig niður því hann hyggur á heimferð austur í Reyðarfjörð á morgun. Hann ætlar þó að koma aftur í haust og kenna hér við skólann.

Vertinn orðinn mjög kærulaus og ætlar að vera í fríi í kvöld líka. Þurfti á góðum nætursvefni að halda og svaf eins og prinsessan á bauninni í nótt sem leið svo hver veit nema ég hafi úthald til að kíkja á lífið í Kjallaranum á eftir. Vonandi mæta þangað sem flestir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband