Súpa og brauð í bland við annað

Nú rennur einn drottins dýrðardagurinn skeið sitt á enda. Sólin hefur umvafið okkur með birtu og il í allan dag og lífið er ljúft. Ég hef verið á fullu í Einarshúsinu alla vikuna og varla gefið mér tíma til að fara á salernið hvað þá gefið stund af mínum dýrmæta tíma til að blogga. Það er synd að þið skulið ekki fá að fylgjast nánar með því sem á daga mína drífur um þessar mundir því lífi hjá mér núna má líkja við æsispennandi fimm stjörnu hasarmynd þar sem Vertinn í Víkinni leikur að sjálfsögðu  aðalhlutverkið og leikur þar fyrir utan nánast öll aukahlutverk sem bjóðast. Ég tel líklegt að Edduverðlaunin verði mín næst þegar þeim verður úthlutað.

Súpan og brauðið í hádeginu hefur fallið vel í kramið hjá bæjarbúum og ég er þegar komin með hóp fastakúnna enda súpan mikið lostæti og rennur ljúflega niður í hvert mál. Milli tíu og og tuttugu manns koma að jafnaði og það hlýtur að teljast nokkuð gott svona fyrst í stað. Guðlaug, nýja vinnukonan í Einarshúsi hantérar súpurnar af mikilli kostgæfni enda kann ég að velja mér frambærileg vinnuhjú sem kunna vel til verka og ég er ótrúlega heppin með mitt fólk.

Í dag keyrði svo um þverbak er fréttist af því að gúllassúpa með öllu tilheyrandi yrði á boðstólnum og rúmlega 30 manns mættu fylltu liði í Einarshúsið og nutu góðra veitinga. Við vinnukonurnar fengum að sjálfsögðu nett áfall yfir þeim ofsafjölda sem sá sig knúinn til að hitta okkur yfir sjóðheitri súpu og brauði og um tíma héldum við að það yrði ekki nægur matur handa öllum. Án efa hefur Einar heitinn Guðfinnsson haldið verndarhendi yfir pottunum og pönnunum því súpan dugði ofan í mannskapinn og ég heyrði ekki annað en að allir færu heim sáttir og sælir. 

Hin heilaga þrenningEinar Kristinn og Össur Skarphéðinsson ráðherrar í ríkisstjórn Íslands höfðu haft spurnir af þessum framúrskarandi veitingum og tóku á það ráð að koma fljúgandi hingað vestur til að fá sér að borða og njóta góðrar þjónustu. Þeir hittu í leiðinni bæjarráð og frammámenn ýmiskonar hér vestra og vona ég að þessi ferð skili einhverju jákvæðu fyrir okkur hér fyrir vestan. Össur er mikill matmaður og ég hvatti hann til að koma á föstudaginn kemur því þá verður boðið upp á kjöt og kjötsúpu að gömlum sið. Ég er ekki frá því að karlinn ætli að láta sjá sig og hver veit nema hann endi sem einn af fastakúnnunum í Einarshúsi. Hann gæti án efa fært mér einn og einn lax til að leggja á borð með sér, því hann er víst algjör sérfræðingur um ástarmál  laxa sem ganga hér ráðvilltir upp í íslensku árnar og heyrst hefur að hann hafi sérstaklega gaman af því að velta sér upp úr kynlífi þeirra í sem smæstum atriðum. Við gætum ábyggilega skiptast á skoðunum um eitt og annað er varðar ýmiss dónamál hinna ýmsu fiskitegunda sem svamla stefnulaust í sjónum við Íslandsstrendur. Veri hann bara velkominn þegar honum hentar. Strákunum  fannst auðvita vel við hæfi að tekin yrði mynd af þeim með Vertinum og á ég allteins von á því að myndin muni hanga í sölum alþingis út kjörtímabilið til að hleypa þrótti og þori í þingheima. Eins og þið sjáið tekur hin heilaga þrenning sig vel út á myndinni.

Dagfarsprúði Baldur, sem bæði tilheyrir bæjarráði og er jafnframt fréttastjórinn á víkara.is tók Í smókmyndina af mér og strákunum og þótti honum myndavélin ekki hæfa frambærilegum fréttaritara eins og mér og pantaði nýja myndavél hið snarasta mér til handa. Hann lét mig hafa nýja tölvu í gær sem ég er að brúka núna og þykir honum ég vera orðin nokkuð dýr í rekstri en ég læt mig fátt um finnast og held áfram að heimta hitt og þetta. Ég bíð spennt eftir heita reitnum sem kemur innan skamms í Einarshúsið og þá mun ég vera í essinu mínu við tölvuna. Ef það verður ekki þeim mun meira að gera við að bera fram gómsætt bakkelsi þá munuð þig fá að fylgjast með hverju mínu skrefi í sumar. Ég hlakka til þegar fólk getur heimsótt mig og unnið við tölvuna sína yfir rjúkandi kaffibolla sem það getur keypt dýrum dómum því það er svo gaman að hafa líf í þessu húsi líkt og forðum. Á myndinni hér til hliðar má sjá tvær góðar í smók.

Þar sem kaffihúsið er núna var eitt sinn verslun þar sem allt var selt milli himins og jarðar. Allt frá hlandkoppum og handsápum upp í steinolíu og sykur var hægt að fá hjá kaupmönnunum í Einarshúsi. Oft var handagangur í öskjunni þegar vikta þurfti hveiti og sykur í poka þegar nýbúið var að selja steinolíu á olíulampann. Þá tíðkaðist ekki þessi stöðugi handþvottur sem er í dag. Þetta væri trúlega bannað með öllu nú á dögum. Ég þarf ógrynni leyfa sem kosta mikla peninga til að mega selja ykkur kolamola úr kolageymslunni endrum og eins og leyfa ykkur að njóta góðrar tónlistar í bland.

Í kvöld ætla ég að vera í fríi. Slaka aðeins á og njóta þess að vera heima. Keypt var útigrill af flottustu sort sem húsbóndinn er að leggja lokahönd á að setja saman. Það verður semsagt grillað í kvöld í tilefni sólar og sumars. Ekkert sérstakt er um að vera í Kjallaranum. Ég reyndi þó að bjóða í Vertinn á Langa Manga en hann sat makindalega í garðstól inn í Húsasmiðju í dag. Ég var til í að kaupa stólinn ef hann fylgdi með í kaupunum því mig vantar góðan trúbador. Langi Mangi var ekki til sölu og því verður enginn geðugur gítaristi á kránni um helgina nema einhver dúkki óvænt upp.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband