Helgin afstaðin

Tel ég nú tíma kominn til að láta aðeins í mér heyra. Langt er síðan ég bloggaði síðast og verð ég aðPalli strandamaðurkenna miklu annríki um það enda hefur verið nóg að gera hjá Vertinum. Ferðalangar eru farnir að skjóta upp kollinum eins og gorkúlur og heilu rúturnar heimta súpu, brauð og aðrar bragðgóðar bruður sem ljúflega renna niður kverkarnar. Ég fékk kór Átthagafélags Strandamanna í heimsókn í hádeginu í gær og það var virkilega skemmtilegur hópur. Þau sungu þvílíka gleðisöngva fyrir mig að undirtók í fjöllunum í kring og Ernirinn skók sig allan við hljómfallið og dillaði sér í takt við harmonikkuspilið hjá undirspilaranum. Veðrið undirstrikaði náttúrufegurðina hér í kring og allir voru svo sáttir og sælir þegar þeir fóru og boðuðu komu sína fljótt aftur. Nokkrir kíktu svo í kaffi um daginn en ég bauð upp á trakteringar í tilefni dagsins og það gekk þokkalega. Allir fengu nægju sína og fóru nokkuð sáttir út í sólríkan daginn. Á myndinni má sjá Palla "strandamann" en hann er giftur inn í kórinn. Við vorum góðir vinir í gamla daga. Einu sinni var bankað á gluggann minn um nótt að sumarlagi í denn og úti stóð Palli skælbrosandi og hélt á tréhjólbörum sem hann hafði stolið frá Tóta gamla Eyjólfs og bauð mér að koma með sér á rúntinn á hjólbörunum. Hann er víst hættur að stela hjólbörum frá gömlum mönnum núna enda orðinn rígfullorðinn og ráðsettur.

KalliKalli Hallgríms var frábær eins og alltaf og var í góðu stuði. Hann var hér á fermingarmóti ásamt gömlu bekkjarsystkinum sínum, því hann eldist eins og allir aðrir og árin sem bætast í sarpinn frá fermingardegi hans verða alltaf fleiri og fleiri.  Það var dansað af miklum móð þetta kvöld og ég þorði ekki annað en að taka niður málverk sem Reynir lét hanga i Kjallaranum svo þau yrðu ekki fyrir hnjaski. Menn sungu hástöfum með Kalla og trommuðu hraustlega á traustum tréborðunum til að undirstrika taktinn.  Svefnhöfgi tók þó yfir hjá sumum gesta þegar líða tók á kvöldið og sumir dottuðu á grjóthörðum bekkjunum sem eru álíka harðir og óþægilegustu kirkjubekkir og virtust dreyma ljúfa drauma. Vinnukonurnar í Einarshúsi unnu fram á morgunn við að undirbúa hádegisverð fyrir kórinn sem ég minntist á áðan og gengið var seint til hvílu.

Heiðruð á sjómannadagKaffihópur kom síðan um miðjan dag í dag í kaffi og meðlæti. Vertinn snaraði stórveislu fram úr annarri erminni í tilefni þess og tók brosandi á móti þessum síungu sjötugu bekkjarsystkinum sem voru að hittast og rifja upp gömlu góðu dagana. Í þeim hópi var Gísli bróðir mömmu og Sigga konan hans. Einnig Addý og Dengsi, en hann mætti síðastur enda nýbúið að heiðra þau hjón á sjómannadaginn og það virtist stíga honum eitthvað til höfðuðs því hann sá sig knúinn til að monta sig örlítið af heiðursmerkinu á leiðinni og lét því bíða eftir sér.  Það kom þó ekki að sök og menn höfðu gaman af.

Sólin hefur skinið svo glatt á okkur undanfarna daga að það er með ólíkindum. Sagt er að sólin elskiMilli tveggja eldaallt og alla en það er nú öðru nær. Henni er í nöp við mig þessa dagana því geislar hennar láta mig fá þvílíkt sólarofnæmi að andlitið á mér er meira og minna allt afmyndað og þrútið. Augun eru sokkin inn í höfuðið á mér og bólguhnútar hafa tekið sér bólfestu á víð og dreif. Ég er komin á pillur og ber krem á mig af miklum móð en lít samt út eins og hertur þorskhaus. Reyndar eru þarna á ferðinni pínulitlar ýkjur en þetta er samt hroðalegt ástand sem enginn verður var við nema ég sjálf sem betur fer. Þið getið þó verið sólinni þakklát fyrir ofnæmið því ég læt ekki mynda mig rétt á meðan og er því ekki með stöðugar myndaseríur af sjálfri mér hér á síðunni. Hér á myndinni til hliðar má sjá vinnuhjúin í Einarshúsi þar sem vinnumaðurinn situr í sólinni á nýju tröppunum fyrir framan húsið milli tveggja elda.

Forvarnarfulltrúinn var á bakvakt í leynilögreglunni um helgina og upp kom mál á suðurfjörðunum sem bregðast þurfti við með hraði svo hann er rokin út í veður og vind. Lilja er þó komin heim svo við getum því notið samvistanna hver við aðra mæðgurnar. Lilja fór í menningarreisu til Reykjavíkur og var í góðu yfirlæti hjá bróðir sínum og mákonu í nokkra daga en er nú komin heim í heiðardalinn. 

Kaffihúsið í Einarshúsi verðuð opið frá og með morgundeginum alla daga í allt sumar. Ég fer semsagt héðan af heimilinu í fyrramálið og kem aftur heim 17. ágúst sem er dagurinn áður en Grikkland verður sótt heim. Þannig að þið vitið hvert á að heimsækja mig í sumar. Ég vona að sólarofnæmið verði horfið þegar við förum út, því mig grunar að vesalings Grikkirnir hafi ekki það sterkar taugar að geta horft upp á andlitið á mér bólgið og útblásið í tvær vikur samfleytt.

Einarshúsið verður netkaffihús og hægt verður að koma með tölvuna sína til mín og tengjast eins og ekkert sé og næla sér í samband við allan heiminn í einni svipan og mun það gerist á næstu dögum. Ég get þá alltaf bloggað þegar lítið er að gera og skrifa eina og eina frétt á víkarann góða jafnóðum og eitthvað fréttnæmt gerist.

Ég ætla að bjóða upp á súpu og brauð í hádeginu og eitthvað gott með kaffinu um miðjan daginn. Réttur dagsins verður á boðstólnum í kvöldmatnum. Einn heimilislegur réttur fyrst í stað fyrir svanga maga. Eldhúsið bíður ekki upp á mjög flókna matargerð núna en það stendur til bóta. Við keyptum megnið af eldhúsinu sem var í Finnabæ og það verður sett upp í Einarshúsi í haust en við þurfum að gera töluverðar endurbætur fyrst. Útidyrahurðirnar eru í smíðum og koma eftir örfáa daga. Þá verður Magnús múrari vonandi búinn að múra allar tröppur utandyra og gera steinsteypta sökkulinn fínan og flottan. Járnið er svo farið að líta til okkar með óþreyju því það vill fara að komast utan á húsið og ég hlakka svo til þegar búið verður að klæða Einarshúsið í kjól og hvítt. Það verður glæsilegt járnklætt líkt og forðum. Það verður stolt okkar og skjöldur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jæja Ragna mín - nú er ég að fá gesti um helgina (já eða Á helginni, réttara sagt :)) og langar að vita hvort eitthvað verður um að vera á Kjallaranum á morgun eða laugardaginn? Er kannski e-r spes heimasíða fyrir Kjallarann? 

Með kveðju, 

Ilmur

P.S. Við kíkjum nú örugglega með gestina á kaffihúsið, sem er náttúrulega með endæmum huggulegt, að ég tali nú ekki um úrvals rækjusalatið og skonsurnar sem þar er hægt að fá.. mmm..  

Ilmur (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 11:46

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Ef gestirnir þínir kunna að spila á gítar og syngja verða skonsur og rækjusallad í boði hússins eins og þig getið í ykkur látið

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 8.6.2007 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband