Fermingarósk

Fermingar eru í Hólskirkju í Bolungarvík í dag. Í dag taka þessi börn postullegri kveðju og staðfesta skírnina sína og teljast til fullorðinna. Þrátt fyrir að vera óttaleg börn núna fullorðnast þau með ógnarhraða og verða orðin ráðsett og rígfullorðin áður en varir.  Hartnær 30 ár eru síðan ég fermdist sem er í raun nánast óhugsandi ef marka má aldur minn og fyrri störf. Það dregur æ meira saman með mér og fermingarbörnum nútímans. Séra Gunnar Björnsson fermdi mig og bekkjarsystkini mín í Hólskirkju 20. maí árið 1979. Það var mjög eftirminnilegt eins og allir aðrir stórviðburðir á lífsleiðinni minni. Ég fékk armbandsúr frá afa mínum, segulbandstæki frá mömmu og pabba og ritvél frá systkinum mínum því ég ætlaði að verða vélritunar hraðritari þegar ég yrði stór enda með takkaæði. Fjöldi annarra góðra gjafa voru bornar á fermingarborðið mitt þennan dag og þetta var mikill gleðidagur.

Mig langar að senda þessum fermingarbörnum sem femast í dag fermingarósk í tilefni dagsins. Vonandi ná geislar sólarinnar sem skín svo glatt hér í Reykjavík í dag alla leið vestur í Víkina góðu. Þessa Fermingarósk samdi vinur minn sem nýlega lést á afmælisdaginn minn, en hann hét Valdimar Lárusson og var mikið skáld auk þess að vera leikari og lögreglumaður.

 

Merki Krists þú kosið hefur

kæri, ungi vinur minn.

Hans sem allt hið góða gefur,

gæt þess merkis hvert eitt sinn.

Lát hans sterku líknarhönd

leiða þig um jarðlífsströnd.

Vertu glaður góður drengur.

Gæska Krists er mikill fengur.

 

Aldrei skaltu honum hafna,

heims þótt glysið bjóðist valt

andlegum því auði safna

allar stundir reyna skalt.

Þótt þig hæði heimurinn,

Herra prísa skaltu þinn.

Honum ávallt treysta og trúa,

til hans öllum vanda snúa.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alltaf gerur þú komið með eitthvað fallegt sem yljarmanni um hjartaræturnar.

Guja (IP-tala skráð) 28.5.2007 kl. 23:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband