Dæli

SveitakerlingarFerðin norður í land gekk glimrandi vel og færðin var góð. Ég var komin í sveitasæluna í Dæli í Víðidal á skikkanlegum tíma en Sigrún og Villi höfðu beðið mín með mikilli óþreyju og tilhlökkunin yfir því að hitta Vertinn var yfirþyrmandi. Það er alltaf gott að fá að henda sér í bæli í Dæli þegar maður er á ferðinni. Tíminn var notaður á heimleiðinni að koma við í Enniskoti hjá henni Heddý mömmu hennar Þórunnar hans Andra og auðvita var myndavélin ekki langt undan og tekin var mynd af sveitastelpunum með skvettunni í lopapeysunni og leðurbuxunum. Sigrún vinkona mín í Dæli er á milli mín og Heddýar.

Þegar ég kom til Höfuðborgarinnar var farið beint á flugvöllinn til að sækja Jón Bjarna sem rétt henti sér upp í flugvél í þrjú korter og brosti sínu blíðasta til mín og Lilju með smá stríðnisglampa í augum því við mæðgurnar höfðum verið á leiðinni suður síðan í gær. Þeir peningar sem ég hefði annars eytt í flugferðir fyrir okkur mæðgurnar fram og til baka verða nýtir til að kaupa rándýra merkjavöru í tískuhúsum hér syðra svo þessi langa bílferð á eftir að borga sig vel þegar upp verður staðið.

Lögreglan vinnur leiðindavaktir um helgina svo ég kem til með að sjá hann í mýflugumynd. Við Lögreglumaðurinn á leið á vaktkeyrðum hann í vinnuna í dag og fylgdum honum upp að dyrum í sólinni sem skein bæði á réttláta og rangláta á höfuðborgina í dag. Það var meira segja svo að hún varpaði geislum sínum á Hafnfirðinga líka en myndin er tekin fyrir utan lögreglustöðina í Hafnarfirði um miðjan dag í dag. Borgarstarfsmenn voru í óða önn að" slá" græn hverfi á víð og dreif um borgina og satt best að segja fann ég til dálitlar öfundsýki yfir gróandanum í borginni og ljúfur þótti mér ilmurinn af heyinu sem var nýslegið. Þegar þessi ilmur gróðurs blandaðist svo menguninni frá bílaflotanum sem bókstaflega yfir fyllti allar götur fann ég fyrir smá heimþrá og kostirnir við að búa út á landi urðu ofan á og gallarnir tróðust undir.

 Elsa og Gunna standa vaktina um helgina í Einarshúsi. Spilavistin er á sínum stað eins og annan hvern föstudag. Mér láðist reyndar að auglýsa hana á blogginu og víkaranum en vonandi hafa menn munað eftir að mæta.

Kíkt var í heimsókn á spítalans til tengdapabba míns og það verður að segjast alveg eins og er að ástandið er ekki næganlega gott. Hann er búin að vera á sjúkrahúsi meira og minna í fjóra mánuði og þetta er að verða þreytandi ástand, sérstaklega fyrir hana tengdamömmu sem er vakin og sofin yfir honum alla daga. Alltaf verður maður þó að vera bjartsýnn og vona allt það besta. Hann verður vonandi hressari á morgun.

Læt ykkur heyra meira síðar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hummmmmmmm þú varst sem sagt ekki langt frá mér !!!!!!!!!!! og komst ekki í kaffi ;-(

Höski lögga (IP-tala skráð) 28.5.2007 kl. 00:35

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Elsku Höskuldur minn. Ég hafði svo miklar áhyggjur af því að hjarta mitt myndi springa af hamingju og fögnuði yfir því að hitta þig og af því að ég var ekki með hjartapillurnar mínar meðferðis þorði ég ekki að taka áhættuna. Lít við næst þegar ég á leið.

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 29.5.2007 kl. 11:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband