Burt með nagladekkin

Þar sem Vertinn er á leiðinni til höfuðborgarinnar þótti ekki annað verjandi en að bregða sér á sumardekkin í tilefni sumarkomu. Stefnt er að brottför upp úr miðjum degi en þá skal haldið yfir hin stórbrotnu vestfirsku fjöll sem gnæfa svo staðföst yfir okkur hér fyrir vestan. Læðist þó að mér sá grunur að bíllinn hafi það jafnvel ekki af upp í mót á sumarhjólbörðunum, því snjóað hefur í fjöllin okkar og æði vetrarlegt um að litast. Ég get þó huggað mig við það, ef ég sit þá ekki föst á sumardekkjunum í snjóskafli yfir alla hvítasunnuna þá munu laganna verðir ekki sekta mig er ég kem keyrandi á bílnum niður Ártúnsbrekkuna eftir að hafa ekið yfir hinar háu heiðar, því ég er komin á sumardekkin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þú hefðir nú ekki fengið neina sekt, við lands-byggðarfólk erum löglega afsökuð.
Við erum að fara vestur um mánaðarmótin,
kannski maður setji bara nagladekkin undir aftur.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.5.2007 kl. 17:01

2 identicon

hér í Norður Noregi gilda aðrar reglur en hjá þeim fyrir sunnan - við fáum sveigjanleika á dagsetningar varðandi nagladekk og strætó er með keðjur - en nú virðist vorið komið, næstum alla vikuna hefur verið hlýrra hér á ~70°N en hjá ykkur á ~60°N og skaflarnir næstum horfnir 

Ester (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 07:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband