Kjallarakeppnin

allt 278Ómar Már Jónsson sveitarstjóri í Súðavík, frændi minn, félagi og vinur verður spyrill í Kjallarakeppninni í kvöld. Þetta er síðasta keppni vetrarins og nú fara þessir föstu liðir í frí enda erum við á leið út í sumarið og spurningarkeppnin leitar einnig út í sólina til hlaða rafhlöðurnar fyrir næsta haust. Ómar á örugglega eftir að verða bráðskemmtilegur spyrill og ég vonast til að sjá sem flesta. Verðlaunin eru eitthvað glundur að vanda og átjánda spurning erfiðari en flestar aðrar og trúlega verða tilboð á kolamolum úr kolageymslunni. Á myndinni má sjá kappann glaðbeittan með tvær góðar á milli sín þegar hann kom á myndlistasýningu Reynis Torfa frænda okkar sem var sýnd í Einarshúsinu 1. maí sl. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sem umsjónamaður keppninar á Langa Manga langar mig að segja þér frá því að það er ekki minni áhugi á sumrin, kannski heldur meiri ef eitthvað er.  Við höfum ekki tekið frí í að verða þrjú ár hér á Ísafirði og keppninar að nálgast 150.

Alltaf jafn skemmtilegt.

Gló (IP-tala skráð) 18.5.2007 kl. 10:07

2 Smámynd: Ester Rut Unnsteinsdóttir

jii hvað hlýtur alltaf að vera skemmtilegt hjá ykkur atarna -

en hvernig er það - ætlar vertinn ekki að láta útbúa heimasíðu fyrir Kjallarann, var að reyna að útskýra staðsetningu og hversu frábært þetta er - á frönsku! en kann ekki frönsku heeh, þannig að ég fór að leita að heimasíðu og nei, ekki til svoleiðis = blessuð farðu að bæta úr því góðan þannig að maður geti farið að vísa ferðafólki á rétta staði..

bkv úr Norge

Ester (rebba) og co

p.s. bið að heilsa Ómari og hinum

Ester Rut Unnsteinsdóttir, 18.5.2007 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband