Vel af sér vikið

Mikið er bjart yfir deginum í dag. Mínir menn stóðu sig vel í kosningunum í gær og bættu við sig þremur mönnum á landsvísu og ég tel það vera vel af sér vikið. Þetta sýnir að fólk kann að meta hvernig haldið hefur verið á spöðunum undanfarin ár. Við höldum inni öllum vestfirsku þingmönnum Sjálfstæðisflokksins og Bolvíkingar eiga áfram tvo menn á þingi þá Einar Kristinn og Kristinn H. og megum því vel við una. Það er þó mikill léttir að kosningarnar skuli vera búnar því þessu fylgir nokkuð stress en þetta er búið að vera mjög skemmtilegt. Ég þurfti að hugsa fyrir svo mörgu að ég gleymdi að panta ýmislegt inn á barinn og sumt kláraðist sumum til pínulítillar gremju en mér verður fyrirgefin sauðshátturinn með tíð og tíma.

Skemmtilegt að segja frá því að Frjálslyndi flokkurinn hélt kosningakaffi í Einarshúsi í gær og fáni flokksins var hendur utan á húsið. Það  er örugglega í fyrsta skiptið sem annar fáni en hinn heilagi fáni  fagurbláa fálkans blaktir í nálægð þessa húss.  Það sýnir að þetta er hús fólksins og allir hafa greiðan aðgang að því og öllum er frjálst að fá það að láni og borga fyrir það okurleigu.

Nóg var að gera i Kjallaranum í gærkvöldi. Menn fjölmenntu til að fylgjast með kosningasjónvarpinu og voru menn í góðum gír. Denni færði sig upp og spilaði þar fyrir gesti og gangandi og fórst það afskaplega vel úr hendi. Fólk sat þar í makindum sínum og naut góðrar tónlistar og dáðist að málverkunum hans Reynis og ég er ekki frá því að nokkrir heitir kaupendur séu nú að spá og spekúlera. Honum hefur gengið vel að selja. Niðri var allt kjaftfullt eins og svo oft áður en það er bara meira gaman ef þröngt er á þingi. Það eykur möguleikana á fjölbreytileika þegar hægt er að nýta húsið betur og hafa fjör á báðum hæðum.

Þegar ég ætlaði að fara að sýna eurovision í gærkvöldi bilaði símalínan og allt fór í steik. Það er ekki í fyrsta skipti sem allt fer i steik í Einarshúsi á ögurstundu. Ef vatnslagnirnar springa ekki með hvelli þá fer símalínan í verkfall. Það vildi svo ljónheppilega til að enginn var mættur til að hlusta á keppnina enda ekkert fútt í henni lengur fyrst að Eiki rauði var dottinn úr keppninni, þeim hefði trúlega verið nær að senda Vertinn til Helsinki með pólskt klapplið í farteskinu.

Eftir mikil heilabrot og vandræðagang þá var Bjarni rafvirki kallaður út og og hann reddaði málum og bjargaði kvöldinu fyrir vikið svo það var hægt að sýna kosningasjónvarpið. Það virðast allir boðnir og búnir að koma og hjálpa mér ef eitthvað bjátar á og það er svo sannarlega stór kostur við að búa í svona litlu samfélagi hvað allir eru hjálpsamir og liðlegar við að aðstoða náungann. Hafþór pípari bíður í startholunum ef rörin verða með uppsteyt og aðrir iðnaðarmenn einnig

Bardömurnar í Einarshúsi voru fram á morgun að ganga frá eftir velheppnað kvöld svo ætli Vertinn takið það ekki bara rólega í dag. Ég þakka ykkur bara komuna, það er alltaf gaman að fá ykkur í heimsókn.

Heyrumst síðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kannski maður kíki á þetta fræga Einarshús í sumar. Og gæti vafnvel rekið inn nefið annarstaðar líka.

Allavega búið að plana eina vesturferð í sumar. KV Erla

Erla (IP-tala skráð) 13.5.2007 kl. 21:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband