11.5.2007 | 12:28
Spilavist í Kjallaranum
Spilavistin er í kvöld og mun án efa verða tekist á í nóló og grandi. Stundum má heyra saumnál detta þegar einbeitingin nær hámarki og langleiddustu spilafíklarnir ná yfirhöndinni í spilamennskunni. Verðlaunin hingað til hafa að mestu leyti verði kertastjakar eða blómavasar en ég tel næsta víst að tími sé kominn til að auka aðeins á fjölbreytnina og hafa eitthvað annað í verðlaun. Kannski kaupi ég kertavasa eða blómastjaka svona til að auka á flóru verðlaunagripa í spilavist. Hver veit. Kannski verða vínber og ostar líka í boði í kvöld. Aðgangur er 500 krónur og rennur allur ágóði í að kaupa verðlaun og vínber fyrir ykkur kæru gestir. Á myndinni hér til hliðar má sjá vænlega verta að vestan.
Forkeppnin euróvísion var í gær og þó nokkur fjöldi mætti í Kjallarann. Eiki rauði komst ekki áfram þrátt fyrir að hafa verið langflottastur með rauða makkann og leðurbuxurnar. Aðalkeppnin verður ekki eins spennandi fyrir vikið en maður tekur þess eins og hverju öðru hundsbiti í hæl og finnur sér bara einhvern annan til að halda með. Það voru nokkur góð lög í boði svo það verða varla vandræði að finna hentuga flytjendur til að halda með.
Viðtalið við Vertinn kom í gærkvöldi í Ísland í dag og mér fannst þetta nokkuð gott viðtal svo ég segi sjálf frá. Ég var ekkert álkuleg á svipinn, hárið á mér var bara til friðs og ég sagði bara heilmikið af viti. Merkilegt nokk. Góð auglýsing fyrir Einarshúsið og það sem við erum að gera þar. Þeir sem misstu af því geta horft á það á netinu. Ég var jákvæð í garð byggðarlagsins og talaði vel um mitt fólk. Ég tel það skipta miklu máli fyrir fólkið í landinu að finna að hér býr jákætt og gott fólk. Neikvæðar fréttir úr Bolungarvík skila engu fyrir fólkið sem hér býr og er að reyna að bjarga sér með miklum dugnaði.
Verum því jákvæð og lítum björtum augum til framtíðar.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Magga Lilja (IP-tala skráð) 11.5.2007 kl. 13:33
Jæja Ragna. Þá fara dagar forvarnarfulltrúans að vera taldir á Vesturbakkanum, um stundarsakir í það minnsta. Ekki vanþörf á miðað við þær athafnir sem hann viðhafði í sundlauginni hér í kvöld. Sat í makindum sínum í heita pottinum og ræddi við húsmæður staðarins um landsins gagn en litlar nauðsynjar. Eftir að ég hafði synt fyrir okkur báða settist ég í pottinn en forvarnarfulltrúinn var þá orðinn sem forsoðinn kartafla, skrælaður og fínn. Svitinn bogaði af húsmæðrunum undan ræðum forvarnarfulltrúans. Er líða tók að lokun laugarinnar röltum við upp úr pottinum, og fyrir tilviljun eina yfirgaf ein húsmóðirin pottinn á sama tíma. Við gengum að dyrum búningsklefanna og ég aðeins á undan, enda ekki inni í þeim samtölum sem viðhöfð höfðu verið og því lítt viðræðuhæfur. Þegar ég var svo kominn inn í sturtuklefann kom forvarnarfulltrúinn, sem enn var í makindum sínum, og var svolítið hissa á sjálfum sér. Eftir nokkra stund gat hann stunið því upp að hann hafi verið svo upptekinn við að ræða við hina sveittu húsmóður að hann gerðist herralegur og hélt hurðinni frá gáttum svo hún gæti gengið inn. Ekki var forvarnarfulltrúinn áttaðri en svo að um var að ræða dyrnar að karlaklefanum og skildi forvarnarfulltrúinn ekki með nokkru móti af hverju húsmóðirin gekk inn um aðrar dyr þegar hann vildi viðhafa kurteisi sem honum hafði verið kennd í barnæsku. Held sé best að senda hann heim !
Svanbergis (IP-tala skráð) 11.5.2007 kl. 23:58
Já það var svo sem ekki við öðru að búast en að þú tækir eitt stykki sjónvarpsviðtal með trompi! Þetta var alveg snilldar vel gert, þú virkaðir alveg einstaklega yfirveguð, skynsöm og gáfuleg, merkilegt nokk
Bestu kveðjur úr Seljahverfinu
Beta (IP-tala skráð) 12.5.2007 kl. 09:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.