Eiki rauði í Kjallaranum

Eiríkur Hauksson ætlar að mæta í Kjallarann í kvöld og taka lagið Velentine Lost fyrir okkur og lesa úr lófa þínum í leiðinni en forkeppni evrópskra sjónvarpsstöðva verður varpað á skjáinn. Við mætum auðvita öll og styðjum við bakið á okkar manni í Helsinki og leiðum hann til sigurs. Hann á án efa eftir að standa sig vel því hann er svo hrikalega flottur karl. Andlitið fer svo vel við rauða síða hárið sem liðast niður herðarnar og leðrið klæðir hann svo afskaplega vel. Eiki rauði er eins og besta eðalvín sem batnar alltaf með aldrinum. Ég hef góða tilfinningu fyrir laginu eins og öllum öðrum lögum sem við höfum sent í keppnina. Ég hef alltaf verið viss um að vinna í öll skiptin sem við höfum tekið þátt en þessir útlendingar virðast hafa svo lélegan smekk fyrir lögunum okkar að það hálfa væri heill hellingur. Ég sjónvarpaði söngvakeppninni í fyrra á skjávarpanum í Kjallaranum og einn gestur mætti til að horfa á, en það var Pétur Magnússon. Ég heillaði af   látúnsbarka sem söng fyrir Írlands hönd, að mig minnir, og heillandi framkoma hans bókstaflega setti mig á hliðina. Aðdáunin skein út úr andlitinu á mér þegar hann söng sig inn í hug minn og hjarta með sínum írska seiðandi og sjóðheita hreim. Í miðju laginu henti hann sér niður á hnén og kirkjaði væminn óð um horfnar ástir eða eitthvað í þá áttina. Pétur skemmti sér hið besta yfir svipbrigðum Vertsins er hún horfði dreymin í augun á Íranum sem söng svo ljúft með sinni lokkandi röddu og talaði beint til min. Ég var komin upp á sviðið í huganum og reyndi eftir fremsta megni að reisa manninn við og styðja hann í gegnum sönginn.  Eftir á að hyggja var þetta óttalega hallærislegt en engu að síður var þetta skemmtileg kvöldstund með Pétri og söngglaða Íranum. 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Signý Kristjánsdóttir

Það séstu nú reyndar litið af honum á morgun, blessuðum ætli hann sé ekki orðin gráhærður eftir þessa meðferð sem hann fékk  

Stoltið beið ósigur í gær hjá manni!

Halla Signý Kristjánsdóttir, 11.5.2007 kl. 08:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband