Ferðamálasamtök Vestfjarða

Vertinn lagði upp í langferð í gær til að sitja aðalfund Ferðamálasamtaka Vestfjarða á Tálknafirði. Hnýta þurfti endalausa hnúta og spyrða saman marga lausa enda heima áður en hægt var að leggja af stað því spurningakeppni var í Kjallaranum þar sem Sigga Kára spurði mann og annan. Gunnar Sigurðsson og Matthildur á pósthúsinu unnu og fóru heim alsæl með verðlaun í formi görugra drykkja. Í hádeginu í dag var svo súpufundur hjá Kristni H. Gunnarssyni og ýmsu þurfti að redda varðandi þann fund. Ég hef haft spurnir af því að þessi hádegisverðafundur hafi lukkast með ágætum og fjöldi manns sótti karlinn heim og allt gekk eins og í sögu. Ég er þá ekki ómissandi eftir allt saman en ég var búin að telja mér trú um það að allt færi í handaskol ef ég færi að heiman.

Ég lagði því seinna af stað í gær en ég ætlaði mér og varð að keyra eins og druslan dró en var samt vel innan löglegra hraðatakmarkana sem í gildi eru á holóttum heiðum hér vestra og ef miðað er við leyfilegan hámarkshraða á hraðbrautunum í Ameríku, keyrði ég löturhægt. Dynjandisheiðin er ekki upp á marga fiska og þegar ég skaust á ógnarhraða ofan í mestu holurnar truflaði geislaspilarinn Halla Reynis í söngnum er hann sagði mér frá lífinu á Kaffi Köben.  Ég komst þá á leiðarenda í tæka tíð og var boðin í mat í Hópinu en þar voru Jón Bjarni og Jón Svanberg í gerfi Geirs og Grana, uppáklæddir sem virðulegir laganna verðir í eftirliti. Þeir áttu þó í fullu fangi með að hafa eftirlit hvor með öðrum og um tíma og um tíma hélt ég að ég þyrfti að kalla út víkingasveitina til að hafa hemil á þessum léttlyndu löggæslumönnum en með minni sérstöku útsjónasemi fór allt vel..

Fundurinn byrjaði svo á því að frambjóðendur flokkana fóru yfir helstu áherslur í ferðamálum og sátu fyrir svörum í pallborði. Það er ekki a sökum að spyrja að Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir oddviti í Tálknafirði og frambjóðandi Sjálfstæðismanna bar auðvitað af og stóð sig með prýði.

Ragna og frambjóðendu.jpgGist var í gistiheimili Erlu á Patreksfirði við góðan aðbúnað. Vaknað var snemma í morgun við ilmandi kaffilykt og hlaðið borð girnilegra morgunverðarétta og að þeim yndæla málsverði loknum var haldið til Tálknafjarðar á fundinn. Það er reglulega gaman að sitja svona fundi og kynnast fólki sem er í þessum bransa, heyra þau mál sem eru í brennidepli og heyra áherslur fólks í ferðaþjónustunni hér fyrir vestan.

Sjálfstæðiskonur hittust í hádeginu í veitingastaðnum Þorpinu á Patreksfirði og nutu góðra veitinga. þar fóru frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins þær Eyrún, Birna og Guðný yfir málin og stöppuðu í okkur stálinu því nu er stutt til kosninga og breiða þarf út fagnaðarerindið. Þetta eru afskaplega frambærirlegar konur sem vita hvað þær eru að segja. Ég lét að sjálfsögðu mynda okkur saman o gekki er annað að sjá en að vel fari með okkur. Þarna brosa ungar konur jafnt sem aldnar framan í heiminn enda ekki annað hægt í svona blíðskapar veðri.

Ég fékk fyrir náð og miskunn að stinga tölvunni minn í samband á logreglustöðinni á Patreksfirði til að blogga og flytja fréttir. Ég sagði ég að almannaheill væri í húfi fyrir svo marga. Aðallögreglustjórinn er þó farinn að horfa til mín ygldur á brún með kilfuna á lofti og hótar að stinga mér í steininn ef ég fer ekki að pilla mig í kvöldverðinn sem er á Tálknafirði með ferðaþjónum.

Mér er því ekki til setunnar boðið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband