Það rignir

Rigningin hefur lamið á gluggarúðunum undanfarið, þó hefur rigningarsuddinn látið sig hverfa annað slagið og hlaupið í felur til auka á margbreytileikann i veðrinu en mætt jafnharðan aftur með enn meiri krafti en áður. Það er merki um rigningu ef Vertinn hengir þvottinn á snúruna og ekki brást henni bogalistin núna frekar en fyrri daginn. Það hefur nánast ekki stytt upp eina einustu stund eftir að tauið var hengt upp með svo mikilli natni á snúrurnar til þerris. Bolvíkingar lesa í þvottinn minn líkt og lesið er í garnir á Dalvík og þykir það með eindæmum hve mikið er að marka þessi teikn. Ólguský byrja að plotta sig saman til að ráðgera ausandi skúraveður þegar ég kem út í sakleysi mínu með þvottabalann minn. Þau nikka þó til mín með falsglott á vör er ég lít til himins bænaraugum um þurrkatíð. Siggi stormur veðurfræðingur samdi við Bjöggu Summ um að láta sig vita þega ég álpast til að hengja út og hefur hann reynst nokkuð sannspár síðan um rigningu og rok hér fyrir vestan. Það verður þó að geta þess að þrjóska Vertsins er þó með eindæmum og bíður hún óhikað rigningunni byrginn. Þvotturinn er látinn hanga þangað til hann er orðinn þurr og oftar en ekki er fröken rigning frekar þurr á manninn er hún játar sig sigraða og hverfur af vettvangi. Sagt er að sá vægi sem vit hefur meira og má vel vera að það sé rétt en ég tek það ekki til mín í þessu sambandi.

Laufey, Ómar og við.jpgAfmælisdagurinn minn var alveg yndilegur þrátt fyrir háan aldur þá ber ég mig vel. Fólk er ennþá að faðma mig að sér og kyssa mig og knúsa. Það er svo notalegt og þetta er að mínu mati kostur við að búa í svona litlu bæjarfélagi. Það er svo gott að geta treyst á það að fólk gleðjist með mér þegar ég upplifi hamingjustundir og einnig er mikill styrkur í því að geta treyst á það að þetta sama fólk sé mín stoð og stytta þegar eitthvað bjátar á. Sumir geta ekki glaðst með öðrum vegna öfundar og afbrýðissemi og ég held að þeir hafi bogið bak sem burðast með þær stöllur sína lífsleið.

Fjöldi manns sótti Reyni Torfason heim í Einarshúsið til að skoða málverkin hans. Hann seldi kynstrin öll af verkum og var hinn ánægðasti. Skyldfólk mitt var duglegt að sýna sig og sjá aðra og ég skemmti mér hið besta. Það sem mér þykir alveg sérstakt er að báðir afar mínir prýða veggi stofunnar en þeir voru báðir heiðraðir á sjómannadag árið 1957. Guðjón Jónsson er á ljósmynd og Hjálmar Þorsteinsson er á mynd sem Reynir teiknaði og er í minni eigu. Svona til gamans þá get ég sagt frá því að ég tók á móti heiðursmerki pabba míns á sjómannadaginn árið 1996 í fjarveru hans. Hugsið ykkur að eiga eina slíka minningu í hinum dýrmæta lífsins sjóði. Ómar Már mætti galvaskur frá Súðavík ásamt Laufeyju konu sinni og upplagt þótti að smella mynd af okkur frændsystkinunum ásamt mökum okkar. Ómar verður spyrill í Kjallarakeppninni eftir hálfan mánuð og þá hef ég fengið alla bæjarstjórana hér í kring til að spyrja. Heyrst hefur eftir mjög áreiðanlegum lygasögum að Ólafur Ragnar sé farinn að ókyrrast á Bessastöðum og vilji koma og fá að vera spyrill og hver veit nema hann reki úr ykkur garnirnar einhvern daginn. Ég á eftir að setja myndir sem ég tók á 1. maí inn í myndaalbúm fljótlega.

Mikið líf var í Einarshúsinu í gær og fjör á báðum hæðum. Bekkurinn hennar Lilju hélt kveðjupartý í um borðKjallaranum fyrir bekkjarfélaga sinn sem flytur senn héðan í burtu og þau voru til fyrirmyndar enda eru krakkarnir í 7. bekk alveg einstök. Þau bera virðingu hvert fyrir öðru og þau eiga að fá orðu fyrir framkomu sína og kurteisi. Þau stilltu sér upp í einum bátanna á höfninni og ég fékk að taka af þeim mynd og eins og sjá má fer þar fríður hópur.

Uppi í salnum mætti forysta Starfsgreinasambandsins og stjórn Verkalýðs og sjámannafélagsins í súpu og brauð og Vertinn lagði frá sér svuntuna eitt augnablik og brá sér í gerfi fréttamanns hjá Víkara og spjallaði við fólkið og bjó til smá frétt. Ég get ekki kvartað undan að lifa einhæfu líferni, það er víst ábyggilegt. Ofvirknin er reyndar stundum að fara með mig og það er ekki laust við að heilinn heimti að ég fari að slaka á en það er enginn tími í einhverjar slökunaræfingar þegar allt er að gerast. Kemur ekki til greina.

Ég brá mér á Ísafjörð í hádeginu á súpufund hjá Sjálfstæðismönnum en þar talaði Einar Oddur um efnahagsmálin. Það var nokkuð fjölmennur fundur og sveppasúpan rann ljúffeng niður undir ræðu frambjóðandans.

Netheimar eru að vinna auglýsingabækling fyrir Bolungarvík og fyrirtæki hér í bænum geta keypt auglýsingar og Einarshúsið er með að sjálfsögðu með. Leiðin lá þessvegna til Magga Hávarðar eftir súpufundinn til að útlista nánar hvernig smámunasami Vertinn í Víkinn vildi hafa auglýsinguna. Þetta er stórskemmtilegur bæklingur og vel útbúinn. Ómar Smári listamaður á Ísafirði teiknaði mynd sem verður á forsíðu hans og enginn verður svikinn af teikningunum hans Smára. Hann vinnur að sýningu sem haldin verður í Einarshúsi í febrúar og þar á margur eftir að verða undrandi.

Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða er um helgina á Tálknafirði og Vertinn leggur því land undir fót á morgun. Það ríkir mikil tilhlökkun að hitta fólk sem er í ferðamannabransanum og bera saman bækur sínar. Ég gisti á Patreksfirði en húsbóndinn er að vinna þar um þessar mundir og hittumst við því í mýflugumynd um helgina. Við erum því einar heima mæðgurnar og búskapurinn gengur þokkalega enda semur okkur vel, sem er ekki skrýtið ef miðað er við hvað við erum  einstaklega skemmtilegar allar þrjár. Ég tek tölvuna með mér og reyni að leyfa ykkur að fylgjast með hverju mínu skrefi eftir fremsta megni. Ég er nefnilega búin að sannfæra mig um það að þið lifið svo tilbreytingasnauðu lífi að eina gleðin og birtan í lífi ykkar sé að lesa bloggið mitt. Svo ég fæ alltaf samviskubit ef langt líður á milli blogga.

Kjallarakeppnin er að vanda á föstudagskvöldið og verður Sigga Kára spyrill. Mig grunar að Svenni verði henni innan handar svo nú skal spurt að leikslokum.

Kristinn H. Gunnarsson heldur súpufund í hádeginu á laugardag og ég er búin að semja við frjálslynt og fjörugt fljóð til að elda sjóðheita og seiðandi súpu í fjarveru minni fyrir gesti alþingismannsins og án efa á hún eftir að bragðast hið besta.

Valdimar Lárusson mágur hennar tengdamömmu og vinur okkar lést á afmælisdaginn minn á sjúkrahúsinu á Hvammstanga. Hann var kunnur leikari í gamla daga og lék meðal annars í Jeppa á fjalli sem fór hringferð um landið á sínum tíma. Valdi var lögreglumaður og skáld og svo var hann líka pabbi hennar Sigrúnar í Dæli í Víðidal vinkonu minnar. Hann gaf út nokkrar ljóðabækur sem ég glugga oft í.

Hann orti um Fyrsta maí:

Verkalýðsbarátta !

Lífsbarátta !

Barátta !

Baráttan hans er töpuð og leiðin liggur á vit nýrra ævintýra. 

Ranka amma mín dó líka á afmælisdaginn minn þegar ég var 11 ára gömul. Af því má sjá að fólk velur sér þennan dag bæði til að fæðast og til að deyja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég verð  nú bara dauðþreytt að lesa þetta, ertu búin að láta klóna þig eða hvað

Svakalega eru súpur orðnar vinsælar, súpufundir hist og her, sitja nokkuð allir þarna í súpunni?

Fínn pistill, kveðja, Auður.

Auður (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 10:29

2 identicon

Ragna mín  það var sagt í minni sveit að þegar konur hættu að fá þurk á þvottinn sinn þá væru herrarnir nú hættir að hugsa til þeirra. Ef þetta gerðist þá var ráð að láta heimasætur, ef þær væru á heimilinu, hengja upp því ekki væri ekki öll von úti hjá þeim að einhver hugsaaði hlýlega til þeirra.

Ég veit að um þig er vel hugsað heima fyrir, svo þetta gamla máltæki á örugglega ekki við þig

Guja (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 17:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband