5.9.2015 | 21:41
Úti um jólin
Þetta hætti alveg að vera drepfyndið þegar Guðmundur læknir sagði að meðferðin frestaðist enn þá meira. Gjafinn minn verður ekki tilbúin fyrr en 7. október þannig að ég fer út um mánaðarmótin og verð því úti um jólin. Það er nú svosem ekki það versta sem komið getur fyrir því það koma önnur jól eftir þessi og svosem eru alltaf jólin hjá okkur. Vonandi gengur allt bara vel í framhaldinu svo þess tímasetning standist.
Svo fóru hlutirnir fyrst að verða drepleyðinlegir þegar hann sagði mér bara hreint út að fyrri aðgerðin með legginn hafi bara verið fúsk. Þessi læknir sem á að vera sá besti til verksins hefði bara alls ekki vandað sig og því fór sem fór. Guðmundur sagðist aldrei hafa lagt blessun sína yfir þennan verknað enda gerði hann mörg mistök í aðgerðinni. Það var því eins gott að ég las yfir karluglunni þarna um daginn og trúlega hefur hann vitað upp á sig skömmnina fyrst hann fór að hringja í húsbóndann með allskyns fyrirslátt.
Ég get því svona 99% "þakkað" þessum karlfauski þessr þrjár vikur sem ég er búin að vera inniliggjandi.
Það er eins gott að hann mæti mér ekki á ganginum......
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Hvurslags !
Kom í gær til að kíkja á þig - og er komin aftur. Meira rápið. Gott gengi í þessu öllu og vonandi ekkert meira fúsk !!
Ragnheiður , 6.9.2015 kl. 13:15
Hvaða rugl er þetta, ég hef verið að lesa í fjölmiðlum og þá sérstaklega í verkföllum lækna og hjúkrunarliða að íslenskir læknar og hjukrunarliðar eru þeir allra bestu í heimi.
Þetta er einhver misskilningur hjá þér Ragna.
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 7.9.2015 kl. 02:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.