30.4.2007 | 23:25
Afmælisboð
Nú skal blásið til stórveislu 1. maí því Vertinn á afmæli. Þrátt fyrir að heil 42 ár séu nú að baki ber Vertinn sig afskaplega vel enda nokkuð ern ef miðað er við aldur. Ég er stolt af hverju einasta ári enda hef ég lifað þeim að mestu leiti leiti í sátt við guð og menn. Maður á að gleðjast yfir hverju ári sem safnast í sarpinn og ég þakka fyrir að fá að vera ung í anda og létt í lund.
Mig langar að bjóða ykkur öllum til mín í Einarshúsið á málverkasýningu hjá Reyni Torfa kl. 15:00 - 19:00 og njóta þessa að hitta mig og dáðst að málverkunum hans. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en það myndi gleðja mig mikið ef þið létuð sjá ykkur og fögnuðuð þessum tímamótum með mér.
Annars leið dagurinn eins og örskot og mikið var að gera. Umsýsla í kring um svona rekstur er ótrúlega mikill. Tröppurnar á Einarshúsinu voru steyptar í dag svo húsið fer að fá sitt upprunanlega andlit. Allt kemur þetta í rólegheitunum því góðir hlutir gerast hægt og ekkert þýðir að vera með neinn asa. Það verður gríðarlegur munur þegar nýju útidyrnar sem eru smíðum verða komnar á sinn stað en þá fyrst mun húsið breyta um svip.
Forstjóri DAS mætti til að stappa í mig stálinu en ég er með umboð fyrir það happdrætti. Hann þáði dýrindis kaffi og var allur annar maður á eftir. Nú fer nýtt happdrættisár að byrja og brýnt að spíta í lófana því mikið liggur við að halda áfram byggingu dvalarheimila. Til stendur að stækka herbergin á Hrafnistu í Reykjavík því þau standast ekki lengur tímans tönn og brýnt að færa þau nær nútímanum. Ég bauð honum að flytja höfuðstöðvar happdrættisins hingað í Víkina en hann gaf ekkert út á það en ég held áfram að þjarma að honum því okkur vantar störfin hingað vestur og það strax. Það er langt þangað til ég fer á Hrafnistu enda bráðung og fjörið rétt að byrja og nægur tími til að huga að varanlegum dvalarstað í ellinni.
Það er þó töluvert styttra þangað til amman á myndinni hér til hliðar fer á elliheimilið en hún er einnig 1. maí barn eins og ég bara mikið eldri. Við Halla Signý erum búnar að vera vinkonur síðan við vorum unglingar og sá vinskapur heldur enn. Ólöf María kom í heimsókn með ömmu sinni einn daginn og skemmti sér hið besta. Halla er bara hreint ágæt kerlingin og ég nota hér tækifæri og sendi henni afmæliskveðju.
Að öðru leiti þaut þessi dagur hjá með ógnarhraða eins og hver annar. Tíminn til að blogga af einhverju viti er af skornum skammti en það mun vonandi hægast um innan tíðar.
Læt þetta duga í bili og ég hlakka til að hitta ykkur í tilefni afmælisins. Sjáumst eldhress.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Hamingjuóskir með daginn!

Bestu kveðjur frá mér og familíunni -
Auður (IP-tala skráð) 1.5.2007 kl. 10:46
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ! Ein af skvísunum sem þú hittir í höfuðborginni um daginn benti mér á bloggið þitt. Alltaf gaman að kíkja á hvað "gamlir" bekkjarfélagar eru að sýsla. Bestu kveðjur úr Danaveldi. Magga Villa
Margret Vilhelmsdottir (IP-tala skráð) 1.5.2007 kl. 10:47
Elsku Ragna og ég! Til hamingju með afmælið,,,, við verðum góðar saman í hvítahúsinu hérna eftir 40 ár,,,,
Halla Signý (IP-tala skráð) 1.5.2007 kl. 12:04
Til hamingju með afmælið elsku Ragna. Þú berð aldurinn að sjálfsögðu betur en við hinar bekkjasysturnar, sem erum farnar að láta á sjá, eins og þú sagðir frá um daginn
Njóttu dagsins kæra vinkona
Mæja Hauks
Mæja Hauks (IP-tala skráð) 1.5.2007 kl. 19:45
Til hamingju með daginn!
Kær kveðja frá Spáni
Ritstjórinn
Baldur Smári Einarsson, 2.5.2007 kl. 09:42
Til hamingju með daginn í gær kæra Ragna.
Guja (IP-tala skráð) 2.5.2007 kl. 21:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.