Leiðtoganámskeið fyrir konur

KjarnorkukonurÉg fór á leiðtoganámskeið fyrir konur í Félagsbæ á Flateyri í kvöld og sé sko alls ekki eftir því. Ég gat svosem sagt mér það fyrirfram að þetta námskeið yrði frábært því Guðfinna Bjarnadóttir fyrrum rektor Háskólans í Reykjavík og núverandi frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins  hélt um stjórnartaumana á námskeiðinu sem bar yfirskriftina, Leiðtogi í lífi og starfi. Hún fyllti þær konur sem þarna voru samankomnar gríðarlegu sjálfstrausti enda var framsetningin svo uppbyggileg og jákvæð. Hún hvatti okkur til að dusta rykið af manngildum okkar og pússa þau reglulega upp. Hennar gildi eru bjartsýni, heiðarleiki, hugrekki og væntumþykja. Hver og ein okkar hefur sín gildi sem við byggjum okkar líf á og nauðsynlegt fyrir okkur að vita hver þau eru og hlúa vel að þeim svo við séum meðvitaðar um fyrir hvað við stöndum. Hún minnti okkur líka á að rödd hverrar manneskju er einstök og á skilið að heyrast því hver og ein okkar hefur eitthvað frábært fram að færa og við eigum að vera óhræddar að láta okkar kosti í ljós. Það eykur sjálfstraustið hjá okkur og sjálfstrausti fylgir kraftur, athafnasemi og stolt.

Mér finnst ég vera full af krafti, athafnasemi og stolti um þessar mundir að stundum held ég að hjartað í mér fari á yfirsnúning vegna þess en einhverra hluta vegna tóri ég enn. Stundum vildi ég að hægt væri að tappa þessari atorku minni af endrum og sinnum en ég fæ útrás í bloggi og annari vitleysu. Ég held stundum að krafturinn allur sem býr innra með mér núna sé ættaður frá hinum háa herra eða einhverjum í fjölskyldunni hans og kalla gott ef sá sem situr við hægri hönd Guðs föðurs almáttugs sendi mér ekki strauma við og við. Ekki taka því þannig að ég sé orðin frelsaður drykkjusjúklingur því það er ekki svo. Í sannleika sagt hafði ég smá áhyggjur af því að ég yrði þannig þegar ég hætti að drekka en svo er ekki. Samt sé ég lífið í nýju og svo miklu betra ljósi.

Ég var skipaður veislustjóri á þessu leiðtoganámskeiði en Birna Lárusdóttir sá til þess, blessunin. Guðrún Stella og GuðfinnaUm leið þurrkuðust allir brandarar og smellnar gamansögur úr kollinum á mér í einu hendingskasti og ég vissi ekki mitt rjúkandi ráð um stund.  En hafði mig þó í að aula út úr mér einum ljóskubrandara og sneri honum að sjálfsögðu upp á Guðfinnu sem tók því bara eins og hverju öðru hundsbiti í hæl. Ég var síðan látin stýra umræðum um hverjir væru styrkleikar og veikleikar þess bæjarfélags sem við komum frá og hvað mætti betur fara en konur voru þarna samankomnar frá Ísafjarðarbæ, Súðavík og Bolungarvík. Ég sló í gegn eins og við var að búast og bar mig mannalega og þóttist vita jafnmikið og rektorinn fyrrverandi og sló þar með ryki í augum á viðstöddum. Það er nefnilega alltaf gott að bera sig vel og leika af fingrum fram á svona stundum. Ég lít upp til Guðfinnu Bjarnadóttur og hún hafði einstök áhrif á mig þegar ég hitti hana í fyrsta skiptið. Þá hugsaði ég með mér að þessari konu vildi ég líkjast og setti mér það markmið að verða eins og hún og svei mér þá ef ég er á góðri siglingu með að ná henni í persónutöfrum og visku.

Aðgerðin hjá tengdapabba gekk framar vonum og útlit er fyrir að hann nái sér að fullu svo dagurinn skilaði góðum fréttum og við erum glöð í hjarta okkar fyrir það.

Af þessu má sjá að dagurinn hjá mér var yndislegur. Ég svaf til hádegis á mínu græna eyra eins og prinsessa og vaknaði í forundran yfir öllum þessum svefni. Þarna sjáið þið hvað ég er heppin að geta sofið eins og ég vil og haft hlutina alveg eftir mínum hentugleika.

Hér fáið þig smá gullkorn áður ég fer í háttinn:

Lífið er fullt af valkostum! Hamingjan felst í stöðugum þroska og að læra alltaf eitthvað nýtt um sjálfan sig, aðra og hversdagslegt umhverfi sitt. Óskirnar rætast þegar hamingjan drepur á dyr, hvar sem er og hvenær sem er.

Þetta var mikill hamingjudagur

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þegar ég bjó fyrir vestan þá virtist mér bæjarlífið á hraðri niðurleið í EKKERT. En þú hefur með skrifum þínum frú Ragna náð að sveipa Bolungarvík dýrðarljóma og sýnt mér að það er VÍST líf í Bolungarvík Þú hefur líka gert frábæra hluti á Víkaranum og heimsæki ég vefinn miklu oftar nú en ella.

En hvenær á að sýna frá Einarshúsi í Íslandi í dag ?

Ásta María (IP-tala skráð) 25.4.2007 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband