16.4.2007 | 00:21
Smotterý fyrir svefninn
Tel best að láta aðeins í mér heyra fyrir svefninn. Hef haft í nógu að snúast í dag. Ég vaknaði hress og kát eftir frábært lokahóf í gærkvöldi og sagan af því á eftir að birtast von bráðar. Nú fer ég að halda heim hvað úr hverju. Tönnunum verður komið fyrir á morgun og það er mikið tilhlökkunarefni. Dálítill kvíði er þó farinn að búa um sig innra með mér því ég á eftir að finna út hvernig ég á að borga brúsann. Mér datt það snjallræði í hug að mæta í Kringluna í Smáralindinni í fyrramálið og sína nýju tennurnar hverjum sem vill. Ég ætla að hafa gamla tanngarðinn meðferðis ef einhver sem veit ekki aura sinna tal ætti leið um og vildi gera mér tilboð í gömlu tennurnar. Ég tel það næsta víst að einhverjum þyki það vænlegur kostur að eiga tanngarðinn úr Vertinum að vestan.
Ég haga mér auðvita heimskulega en ég er búin að liggja yfir pistli í allan dag sem birtur verður á vísum stað fljótlega og þar er ég búin að vaða á súðum og er því þurrausin af góðum og smellnum sögum til að segja ykkur frá í augnablikinu.
Ég gisti hjá Andra og Þórunni kærustunni hans. Þóra tvíburasystir hennar er í heimsókn en þær eru eineggja tvíburar og eru töluvert líkar en samt ekki. Ég smellti mynd af stelpunum og ég tel upp á það að stelpan mín sé hægra megin á myndinni. Þær eru fæddar 27 janúar 1988 og koma frá Enniskoti í Víðidal og eru því óttalega miklar sveitastelpur. Önnur þeirra stundar nám í Borgarholtsskóla en hin í Fjölbrautarskóla Norðurlandsvestra á Sauðárkróki. Báðar bráðvelgefnar að sjálfsögðu og vel af guði gerðar.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Æ mig langar svo til að forvitnast, var þetta implant sem þú fórst í ? ef svo er hvað kostar þetta og hjá hverjum ertu? fyrirgefðu forvitnina en það er ekki svo oft sem fólk talar opinskátt um þetta. kveðja gua
gua, 16.4.2007 kl. 11:37
Ég er hjá yndislegum tannlækni sem var að byggja upp í mig tannbrú. Hann er ekkert dýrari en aðrir tannlæknar nema síður sé en ég segi frá mínum tannlæknaferðum hér á blogginu mínu með afar frjálslegum hætti. Hann bíður mér teppi ef mér er kallt og nuddar mig ef svo ber undir. Þetta er auðvitað mjög dýrt fyrir vesælan vert eins og mig en nú brosi ég fallegu postulínsbrosi eftir meðferðina í morgun og er fær í flestan sjó
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 16.4.2007 kl. 13:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.