Hitt og þetta

Nú er páskahelgin að baki og aðeins farið að hægast um hjá Vertinum í Einarhúsi. Þetta er búið að vera annasamur tími og taugarnar hafa verið þandar til hins ýtrasta. Ég kem frekar illa sofin frá þessu öllu saman en hver segir að maður þurfi alltaf að vera sofandi. Það er nægur tími til að sofa þegar á elliheimilið er komið, ef hægt er að sofa þar á annað borð fyrir útúr rugluðum gamalmennum.

Baldur Smári og Baldur SmáriÞað er búið að vera gífurlegur gestagangur í Kjallaranum yfir hátíðarnar og mér var eiginlega farið að finnast vera komið nóg í nótt þegar húsið yfirfylltist eina ferðina enn og ég þurfti að kalla út aukamannskap. En mikið lifandis skelfing er búið að vera gaman. Það er fátt skemmtilegra en að taka á móti skemmtilegu fólki. Fjölmargar myndir voru teknar og ég mun setja þær inn á síðuna mína fljótlega svo þið getið fengið að njóta þess sem þar var í boði. Gaman að segja frá því að tveir nafnar létu sjá sig og voru stoltir af nöfnunum sínum. Á myndinni hér til hliðar má sjá þá Baldur Smára til hægri og hinu megin við hann stendur Baldur Smári og er hann því vinstra megin á myndinni. Ég veit ekki alveg hvor er hvað enda skiptir það engu máli.

Ég er komin til Reykjavíkur og mun dvelja hér í rúma viku. Tannlæknirinn minn kallar en hann hyggur nú á landvinninga og stefnir á ferðalag kringum hnöttinn með alla stórfjölskylduna og vantaði aðeins upp á að endar næðu saman. Ég kem því færandi hendi alla leið vestan af fjörðum til að létta undir með blessuðum karlinum svo honum skorti nú ekki klink í ferðalaginu. Ég kem veltennt heim og það er fyrir öllu.

Ég fékk far með ungum manni og litla guttanum hans sem senn verður tveggja ára. Sá stutti kallaði mig ömmu allan tímann og þótti ekkert eðlilegra. Ég hafði bara gaman af því og vonandi á ég eftir að upplifa það einhvern daginn að verða amma. Þá skal ég spilla barnabörnunum og ofdekra þau eins og ég get. Ég hlakka bara til þegar þau koma eftir NOKKUR ár. Ég er ekki tilbúin til að verða amma alveg strax.

Ég fór í mína fyrstu hestareið á föstudaginn langa og það er eitt af því skemmtilegasta sem ég hef gert um ævina. Mikið rosalega var gaman. Blesi brokkaði og lullaði á víxl með kerlinguna á bakinu og hélst hún með undraverðum hætti upp á hrossinu allan tímann. Það var farið yfir ár og læki, hleypt á skeið upp dali og yfir engi og tún. Sungið var um rósina undir háu hamrabelti og áð í Meirihlíð þar sem Finnbogi og Dísa buðu upp á trakteringar. Þetta nánast toppaði alla páskana. Stórveisla var í boði í félagsheimili hestamanna eftir reiðina en mamma og pabbi voru með matarboð fyrir fjölskylduna og þangað lá leiðin í Íslenskan fjallahrygg með öllu tilheyrandi. Hátíðarfundur AA samtakanna var svo um kvöldið í Ísafjarðarkirkju og það var mjög fínt að komast þangað og ekki spillti fyrir að kökur og kaffi voru í boði á eftir.

Denni mætti galvaskur um miðnættið á föstudaginn langa og það var ekki að spyrja að því að hann sló í gegn enda prýðistrúbador. Í hléum tók Einar Örn í gitarinn og Benni Sig líka svo þið getið rétt ímyndað ykkur hvort það hafi ekki verið gaman. Sumir unglingar urðu yfir sig ástfangnir og fannst Vertinum á tímabili ástarlotin fara út í öfgar svo þessar turdildúfur voru barðar með borðtuskunni og þorðu þau ekki öðru en að halda sig á mottunni eftir það. Það má með sanni segja að þetta er fjölbreytilegt starf að vera Vert og maður þarf að grípa inn í ýmsar athafnir

Gunna spyrillVertinn kíkti á tónleika þeirra sem aldrei fóru suður á laugardagskvöldið, því berja þurfti Flæðið augum en þar leika Benni Sig og Valdi aðalhlutverkin ásamt öðrum prýðis tónlistarmönnum. Þeir voru auðvita bestir. Önnur tónlistaratriði fóru fyrir ofan garð og neðan. Lilja sagðist hafa séð hundrað karla í lopapeysum með sítt skegg á hátíðinni og þótti nóg um. Það var svoldið einkennandi útlit á samkomugestum. Við stoppuðum stutt og fórum snemma heim. Ég var í fríi á laugardagskvöldið þegar Gunna Gumma Hafsa spurði spjörunum úr. Það var slangur að liði sem tók þátt í spurningakeppninni og fóru Arnar Heiðars og Ingvi, hennar Þóru Hans, mað sigur að hólmi. Gunna var með frekar erfiðar spurningar að sögn þeirra sem tóku þátt.  Búðin hjá Kitta Summa, afa Gunnu, hét Hringur en það var ein spurningin hjá henni. Því var ég búin að steingleyma en stundum lagði maður leið sína þangað þegar vantaði gott í gogginn. Þær mæðgur og bardömur, Gunna og Helga dóttir hennar fengu að vinna fyrir kaupinu sínu á barnum því þegar líða tók á nóttina fylltist Kjallarinn af fólki og þeir í HAM fóru í ham ásamt öðrum sem fóru úr ham en allt var þetta í góðu og menn skemmtu sér hið besta.

Páskadagur rann upp eins og við mátti búast og tilhlökkunin yfir að heyra þá tvo trylltu og töfrandi Tveir trylltir og töfrandisem ætluðu að troða upp um nóttina í Kjallaranum var yfirþyrmandi. Einkasamkvæmi var í Einarshúsi um kvöldið og því mikið um að vera strax og opnað var fyrir almenning. Það er ekki beint hægt að segja að þeir Orri og Bjarni Pétur hafi slegið í gegn en þeir voru svo sannarlega trylltir og töfrandi og tældu til sín fullt hús af fólki. Ein og ein falsetta slæddist með söngnum en það var ekkert sem orð er á gerandi. Undirleikurinn var til fyrirmyndar svo og allt þeirra fas og yndisþokki svo það er ekki undan neinu að kvarta. Valdi kom og greip í gítarinn af sinni alkunni snilld og hélt uppi stuði og það skemmdi ekki fyrir góðu kvöldi.  Mikið fjör var í Kjallaranum og mikið gaman. Merkilegt hve mikið af fólki kemst í svona lítinn kjallara ég tel víst að það hafi ekki verið mikið fleiri á Aldrei fór ég suður en sýndu sig hjá Vertinum um páskana.

Á morgun rennur upp nýr dagur og ég á án efa eftir að lenda í einhverjum ævintýrum. Ég læt ykkur fylgjast með.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið er nú gaman að lesa bloggið þitt:) Kær kveðja, Ásta María (dóttir Mumma og Signýjar)

Ásta María (IP-tala skráð) 9.4.2007 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband