Hestafóður

Kúnstugur knapiVertinn lagði land undir fót í dag því leiðin lá til Þingeyrar til að vera viðstödd vígslu nýrrar reiðhallar á Söndum í Dýrafirði. Reiðhöllin hefur fengið nafnið Knapaskjól og hljómar nafnið mjög vel. Húsið er allt hið glæsilegasta og vonandi á það eftir að verða iðandi af lífi og fjöri í framtíðinni og nýtast hestamönnum hér í Bolungarvík vel. Blesi minn hefur sprett úr spori með smáfólk á námskeiði í þessu glæsilega húsi og kom hin ánægðasti heim aftur.

Bolvíkingar spiluðu stórt hlutverk og komu ríðandi hver á fætur öðrum á þvílíkum eðalklárum að annað eins hefur ekki sést hér vestra um langa hríð. Þau sýndu okkur listir og heilluðu áhorfendur upp úr skónum.  Þetta var til fyrirmyndar og ekki spilltu snitturnar fyrir og heita súkkulaðið sem borið var á borð í restina.

Forseti bæjarstjórnar hringdi í mig í morgun og bað mig að færa aðstandendum þessarar reiðhallar blóm fyrir hönd bæjarstjórnar og segja örfá orð. Ég gerði eins og fyrir mig var lagt enda er það eitt af skildum bæjarfulltrúa að koma fram fyrir sitt byggðarlag og flytja árnaðaróskir frá Bolvíkingum þegar það á við. Við erum sjö fulltrúar kjörnir af fólkinu í bænum og þetta tilheyrir okkar starfi þegar við getum komið því við.

Ég gekk upp í pontu með blómvöndinn hægum og öruggum skrefum. Leit til allra átta og bugtaði mig og beygði enda voru þarna ráðherrar, þingmenn, bæjarfulltrúar auk hestamanna og annara góðra gesta. Ég flutti óaðfinnanlega tölu þar sem ég fór í fáum orðum yfir ræktun íslenska hestsins í aldanna rás. Annað veifið leit ég yfir líðinn og gjóaði augunum reglulega á bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar sem breyttist alltaf meir og meri í púka eftir því sem ég tjáði mig meira um graðhesta, tilhleypingar og sæðisgjafir. Að lokum voru honum vaxinn horn og hali og heimtaði að fá orðið á eftir mér. Þurtfti hann þá að hæðast að blómvendinum sem ég kom með færandi hendi frá Bolvíkingum og sagði að ég hefði komið með hestafóður handa hestunum. Ég tók hann auðvita á teppið fyrir þessi heimskupör en hann skammaðist sín ekkert.

Spilavistinn var stórskemmtileg að vanda. Hálfdán Guðröðarson og Magnús Sigurjónsson fóru með sigur að hólmi en Lilja og Sigga Kára voru með jafnmörg stig í kvennaflokki og fór Sigga heim með Villa Valla og Lilja með Bjarna Guðmundsson. Óli Óla fékk Villa Valla einnig með sér heim. Villi Valli er orðin margfrægur hér í Víkinni og hefur verið sendur heim með hinum og þessum.

Annars er allt kvöldið búið að vera undirlagt hér við tölvuna. Fréttaritarinn tekur sinn tíma í fréttaskrif og ekkert nema gott um það að segja. Ég hef svo gaman af þessu.

Stórkostleg tilboð eru í Kjallaranum í kvöld og ég er í fríi. Elsa og Gunna standa vaktina í nótt. Ég ætla þó að kíkja niðureftir á eftir og líta við. Slangur af fólki er víst mættur enda stórkostleg tilboð á kolamolum úr kolageymslunni. Tilboð verða alla páskana. Alltaf er að bætast við páskadagskrána í Kjallaranum og voru "Tveir trylltir og töfrandi" jafnvel að boða komu sína um páskana. Það verður ekkert frekar látið uppi um þá að svo stöddu. Vonandi nást samningar við þær stórstjörnur.

Munið bara að fylgjast með blogginu mínu og vera dugleg að koma við með góða skapið ykkar eins og ætíð því það er svo gaman að vera saman og gleðjast í góðum hópi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Orð þín í garð  okkar Stormsfélaga í dag  voru þér og bæjarstjórn Bolungavíkur til sóma. Blómin yljuðu  og engin þörf á að gefa hrossunum þau enda nóg af heyi á Söndum. Sinn er siður í hverri sveit en kannski gefa þeir sem lítið þekkja til hrossa þeim afskorin blóm. ( Skildi það hafa tíðkast í Ögurhreppi hinum forna.)

Það var engu líkt að ríða um þessa glæsilegu höll í dag, ég hef sjaldan upplifað annað eins. Mikið erum við sem búum hér við ysta haf heppin að eiga hlutdeild í þessum gæðum. Það hefur lengi loðað við Bolvíkinga að þeir séu sæmilega ríðandi eins og þú sást í dag þegar mikið liggur við og þetta vita menn og kalla okkur auðvita til á ögurstundu. Nema hvað :) :)

Guja (IP-tala skráð) 1.4.2007 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband