28.3.2007 | 23:19
Frjósemisbragur
Lag: Flagarabragur
Í bænum hefur bæjarbúum undanfarið fækkað
og tíðni barnafæðinga í framhaldinu lækkað
en ráð við þessu reiðileysi vissi engin maður
og Víkin var að verða einn, vesæll eymdarstaður.
Við þetta ástand Bolvíkingar vildu ekki una
af vörum manna heyrðust bæði andvörp þung og stuna
Hjá Sossu ekki heillaráðin bæjarbúa sviku
því nú við skildum sofa hjá, í ágúst eina viku.
Viðlag:
Ó, já þá skulum hafa gaman
í ástarleikjum ýmisskonar gamna okkur saman.
Ef þátttakendur ástarviku héldu sínu spori
mun ástarinnar ávöxtur, fæðast nú að vori.
Og strax var hafist handa við að fjölga hér í bænum
því hérna þurfti kraftaverk og það í einum grænum
Svo lýsa varð með rauðum ljósum bolvískt næturhúmið
því lokka varð nú elskendur, beina leið í rúmið.
Í öðru hverju skúmaskoti sáð var ástarfræjum
svo hér var meira líf en er í flestum öðrum bæjum.
Og margir áttu meiri háttar unaðskrem í krukkum
sem mýkti upp og slétti úr, millifóta hrukkum
Viðlag:
Ó, já þá skulum hafa gaman
í ástarleikjum ýmisskonar gamna okkur saman.
Ef þátttakendur ástarviku héldu sínu spori
mun ástarinnar ávöxtur, fæðast nú að vori.
Hjá sumum reyndust vandamál sem nánar varð að skoða
ef verma skildi kynlífs kul og margra ára doða.
Í lyfjabúð þá skundað var ef leita þurfti ráða
því lífga varð í snarhasti, þróttlausa og þjáða.
Á apóteki afsláttur var veittur út á visa
og viagra var tuggið, til að fá hann til að rísa.
Með tilhlökkun þá turtildúfur brugðu sér í bólið
og taumlaus reyndist ástríðan, ef funkeraði tólið.
Viðlag:
Ó, já þá skulum hafa gaman
í ástarleikjum ýmisskonar gamna okkur saman.
Ef þátttakendur ástarviku héldu sínu spori
mun ástarinnar ávöxtur, fæðast nú að vori.
Þá varla þessa vikuna var tími til að vinna
því náttúrunnar kalli varð í sífellu að sinna,
og ekki mátti tímanum í óþarfa að sóa
því margvíslegar stellingar, þurfti nú að prófa
Að fjölga hér í bænum flestir settu þá á oddinn
og fagnandi svo bæjarbúar fengu sér á broddinn.
Nú eftir næstu ástarviku erfitt er að bíða
því öllum hérna langar svo, upp í rúm að ..............sofa?
Viðlag:
Ó, já þá skulum hafa gaman
í ástarleikjum ýmisskonar gamna okkur saman.
Ef þátttakendur ástarviku héldu sínu spori
mun ástarinnar ávöxtur, fæðast nú að vori.
Þorrablótið 2005
Höf: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Ég var að hlusta á það í fréttum að árið 2050 yrði hlutfallið milli vinnandi og ellilífeyrisþega 2:1 í stað 5:1 í dag. Aðferðir Bolvíkinga mætti því taka upp á landsvísu.
Jón Sigurgeirsson , 29.3.2007 kl. 10:41
Flottur texti mamma mín kær ;**
-Lilja:'D
Lilja sææta ;**:+D (IP-tala skráð) 29.3.2007 kl. 19:14
Þér bregst ekki bogalistin, hér fremur en fyrridaginn, kæra vinkona
Halla Signý Kristjánsdóttir, 29.3.2007 kl. 19:51
Frábær texti ,þú leynir á þér .....vissi ekki að þú værir hagmælt.
kveðja Kolla ......P.S.Ég er farin að þekkja þig á myndinni hún er fín!
kolbrun sverrisdóttir (IP-tala skráð) 29.3.2007 kl. 21:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.