20.3.2007 | 11:14
Undraland
Síðasta leiksýning Lisu í Undralandi var í gærkvöldi og ég bauð Lilju með mér. Mér fannst þetta hin besta skemmtun og var létt mín lund eftir að hafa vafrað um ævíntýraheima Undralands með þeim furðuverum sem þar búa. Þorbjörn fór á kostum sem kanínan og það var svo auðséð að hann hafði unun af því sem hann var að gera og það skilaði sér í leiktilburðum hans. Ég myndi mæla með því að hann færi í leiklistarskólann ef einhver kostur væri á því. Aðrir leikarar stóðu sig ósköp vel og lögðu sig fram og var stórskemmtilegt að fylgjast með svipbrigðum þeirra á sviðinu. Ekki má svo gleyma hljómsveitinni með Halldór Smárason í broddi fylkingar en þessir tónlistarmenn munduðu hljóðfæri sín frábærlega og slógu taktinn sem einn maður. Halldór er flinkur músíkant og stórvinur Valda Olgeirs. Þeir félagarnir ætla að heimsækja mig í Kjallarann við tækifæri.
Ég gerði samning við trúbador sem kemur til mín um páskana og símskilaboð gengu okkar á milli meðan Lísa bjó sig undir veislu drottningar með hattarann og klikkaða hérann sér til halds og trausts. Samningar náðust og það er orðið ljóst að Einar Örn Konráðsson kemur vestur um páskahelgina og ætlar að syngja þessa hátíð upprisunnar inn á miðvikudagskvöldið 4. apríl. Einar Örn tók þátt í keppni trúbadora nýverið og hlýtur því að vera eitthvað í strákinn spunnið og er hann án efa góður gítaristi og söngvari. Hann er Bolvíkingur og því einn af strákunum okkar og ég tel heppilegt að þið takið þetta kvöld frá í tíma. Hver veit nema einhverjar fréttir verði af tilboðum í gömlu kolageymslunni þegar nær dregur en barinn er hýstur þar sem áður var kolageymsla í kjallara Einarshúss. Verslunarlager var einning í kjallaranum því verslun var rekin í húsinu frá fyrstu tíð og fram eftir öldinni. Þvottahús húsráðenda var þar sem " koníaksstofan" er núna og kamínan kom í stað þvottapottsins þar sem allur þvottur heimilisfólks var þveginn. Margar vinnukonur störfuðu í Einarshúsi og er eitt herbergi á efstu hæðinni tileinkað þeim og hefur borið nafnið Vinnukonuherbergi frá fyrstu tíð.
Gríp ég niður í Einars sögu Guðfinnssonar:
Það þurfti að dæla baðvatni í dúnk uppi á lofti í Einarshúsi. Vinnukonurnar höfðu þennan starfa, en komust sumar létt frá honum á stundum. Það komu nefnilega ungir menn aðvífandi og dældu fyrir þær og unnu sumir hug stúlknanna, þó að máski fleira hafi nú orðið til þess en beinlínis dælan. Það er svo sem ekki að fortaka það, en Einar telur ákveðið, að dælan sín hafði stofnað til að minnsta kosti þriggja farsælla hjónabanda og margra barna í þorpinu, og kannski fleiri en vitað er um. Stúlkurnar gátu varla fengið haldbetri staðfestingu á ást en þetta, að piltarnir komu hlaupandi til að dæla, því að dælan var þung og seinlegt að fylla dúnkinn. En þarna stóðu þeir sveittir og dældu og gátu rabbað við stúlkurnar sínar á meðan, - og uppskáru sumir ríkuleg laun um síðir. Vinnustúlkur í Einarshúsi vóru oft bestu kvenkostir plássins.
Lítið hefur breyst í áranna rás því vinnukonurnar í Einarshúsi er enn bestu kvenkostirnir í plássinu og þykja bera af hvar sem þær koma.
Annar geðugur gítaristi kemur til mín á miðnætti á Föstudaginn langa því Denni eða Steingrímur Rúnar ætlar að mæta og spila fyrir okkur velvalda slagara fram á rauða nóttina. Þar lætur enginn sig vanta frekar en fyrri daginn þegar Denni kemur hingað úteftir frá höfðuðstað Vestfjarða og upplagt er að taka vel undir og hafa gaman. Svo þið sjáið það að af nógu verður að taka hér vestra um þessa helgi og engum á að þurfa að leiðast.
Hefbundin störf bíða í dagsins önn. Hestarnir bíða tuggunnar sinnar og leið mín liggur í hesthúsin rétt bráðum. Þar er viðbúnaðarástand í augnablikinu vegna snjóflóðahættu svo ég verð að fara varlega og ætla að rýna vel upp í Erninn áður en ég legg í að hitta þessa vini mína. Hugsið ykkur að öll þessi fallegu fjöll sem umlikja þennan stað og gefa manni þrótt og þor geta breyst í ógnandi furðuverur þá og þegar. Þetta er sannkallað Undraland sem við búum í og ef einhver lendir í ævintýrum hér þá er það svo sannarlega ég.......Lísa
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Ég mæti. Fólk má dansa, bara ekki við mig!
Steingrímur Rúnar Guðmundsson, 20.3.2007 kl. 12:17
Hlakka til að hitta þig hressan og kátan.
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 20.3.2007 kl. 13:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.