19.3.2007 | 15:43
Gestagangur
Veðurguðinn Seifur hefur sennilega verið einn af þeim rúmlega 400 gestum sem sóttu síðuna mína heim í gær. Hann hefur ákveðið að taka sér tak og breyta um takt því veðrið í dag er dásamlegt. Makalaust hvað við Vestfirðingar þurfum að tala mikið um veðrið. Það hefur auðvitað þær skýringar að okkar aðalafkoma hefur tengst sjósókn í gegnum tíðina og þar hefur veðurfar útslitavald um hvort hægt sé að sækja sjóinn eður ei til að draga björg í bú. Báturinn hér til hliðar má þó muna sinn fífil fegri og liggur hjálparvana í fjörunni. Hann hefur án efa skilað góðu verki og hýst bæði þorska, ýsu og ufsa. Hans dagar eru nú taldir og hann siglir sæfesta Dröfn ei meir. Ég veit þó ekki hvaðan þessi bátur kemur eða á hvaða leið hann er. Ég vona að hann hafa þarna stutta viðdvöl og verði ekki látinn grotna niður í fjöruborðinu og að eigendur hans taki hann undir sinn verndarvæng og fargi honum á viðeigandi hátt.
Húsbóndinn lenti mjúklega í morgun á flugvellinum eftir frábært flug í sól og blíðu. Mannmargt var á flugvellinum enda var ekkert flogið í gær og fjölmargir þurftu að komast á milli staða. Ég hitti svo marga sem ég þekkti á vellinum og þurfti að tala við þá alla eitthvað smávegis. Það virðist losna meira og meira um málbeinið á mér eftir því sem ég eldist og stundum er ég nær óstöðvandi og bara masa út í eitt. Ætli það sé til eitthvað við þessu ?
Sigurður Jónasson fyrrum lögregluhundamaður var á vellinum ásamt Soffíu Karlsdóttur konu sinni sem kom hér vestur til að halda tónleika á Langa Manga. Þau voru upplýst í snarhasti um þessa frábæru krá í Kjallara Einarshúss sem tilvalin stað til tónleikahalds. Þau viðurkenndu hálfskömmustuleg að hafa ekki heyrt á hana minnst en þau munu koma og troða þar upp á ferðalagi sínu komandi sumar. Ég fékk geisladisk með söngkonunni og fór því heim bæði með karlinn og geisladiskinn"wild horses" í farteskinu. Ég læt flakka með mynd af þeim fjórum lögreglumönnum sem unnu með fíkniefnaleitarhunda á árinu 2000. Þar má sjá Nökkva okkar sem við áttum í tíu ár og var þvílík gæðaskepna að leitun er að öðru eins. Hann lék í kvikmyndinni, Í faðmi hafsins, sem Lýður læknir gerði á sínum tíma og lék þar eitt af aðalhlutverkunum og stóð sig með prýði. Það var ótrúlega erfitt að sjá á eftir Nökkva þegar hann yfirgaf okkur. Fyrrnefndur Sigurður er lengst til hægri á myndinni með Flóka.
Ef minnið bregst mér ekki þá á Fanney bekkjarsystir mín afmæli í dag á síðasta degi Góu. Það er margs að minnast frá uppvaxtarárum okkar því við brölluðum mikið saman. Ég sendi henni afmælisóskir í tilefni dagsins. Hún er mér kær þessi gamla og góða vinkona. Einmánuður hefst með pompi og prakt á morgun og dvelur hann við í mánuð eða þangað til Harpa lítur dagsins ljós þann 19. apríl á sumardaginn fyrsta.
þökkum þennan fallega dag með breiðu brosi því það er gaman til þess að vita að það er hægt að eyða heilum degi í að taka á móti brosum frá ókunnugum - og helmingi fleirum ef maður brosir sjálfur fyrst.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 635843
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.