18.3.2007 | 19:55
Sagan af Seif
Öllu flugi er aflýst í dag hingað vestur svo húsbóndinn er veðurtepptur í höfuðborginni fram á morgundaginn. Flugfarþegar þurftu þó að þola nokkur hopp og skopp yfir Ísafjarðardjúpi áður er flugvélin tók ákvörðun um að snúa aftur suður. Það er aldrei skemmtilegt að komast ekki á áfangastað á réttum tíma en yfir veðrinu ráðum við víst ekki. Gengið hefur á með dimmum éljum í dag en birt hefur þess á milli. Þessi veðurguð á mjög erfitt með að ákveða úr hvað átt hann blæs og með hvað hætti hann lætur lægðir og hæðir leggjast enda virðist hann hafa öðrum hnöppum að hneppa ef marka má sögusagnir úr grískri goðafræði. Þar segir að Seifur sé æðstur goðanna og talinn bæði almáttugur og alsjáandi veðurguð. Þrátt fyrir að vera giftur Heru systur sinni, kom Seifur sér upp mörgum hjákonum og eignaðist með þeim fjöldann allan af börnum. Margar sögur eru til af kvennafari hans, bæði með gyðjum og mennskum konum, og afbrýðisemi Heru sem fylgdi í kjölfarið. Seifur gat breytt sér í ýmis dýralíki og blekkti oft konur með því til samfylgis við sig eða tók þær jafnvel nauðugar. Ég vona að hann fari að láta af þessu kvennastússi sínu og standi sig betur í því sem hann var ráðinn til að gera og fari að blása sunnanvindum bliðlega til okkar sem bræða burt snjóinn og ilja okkar hjarta.
Alþingi hefur lokið störfum í bili og er komið í frí fram á haust. Vænta mér einhverra breytinga á þingmönnum eins og venja er eftir kosningar og gaman verður að sjá ný andlit. Ég stend þétt við bakið á mínum mönnum í Sjálfstæðisflokknum enda eru traustir menn þar í framvarðasveit.
Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður er næsti spyrill í Kjallarakeppninni á föstudaginn kemur ef allt gengur eftir. Ég vona svo sannarlega að hann snúi sér af fullum krafti í að semja spurningarnar fyrst þingið er komið í frí og standi klár á keppninni. Hann var stærðfræðikennarinn minn þegar ég var í grunnskólanum og finnst mér líklegt að hann komi með einhverjar snúnar spurningar þar sem stærðfræðikunnáttu er krafist. Kristinn á án efa eftir að spyrja spurninga sem tengjast frjálslyndum framsóknarmönnum og þá er um að gera að hafa svarið á hreinu. Gárungarnir gerðu grín að spurningum Halldórs Halldórssonar bæjarstjóra sem eitt sinn spurði í Kjallarakeppni og sögðu hann ekki hafa spurt út fyrir túnfótinn í Ögri en þessar spurningar geta verið úr öllum áttum og um hvað sem er. Mér fannst þó Halldór hinn besti spyrill.
Við Elsa könnuðum hitastigið á pottinum í dag en bæði sundlaugin og heitu pottarnir eru hitaðir sérstaklega á sunnudögum og gufan er opin fyrir alla. Það hreinsar bæði sál og líkama að komast í sundlaugina og maður verður eins og nýr maður á eftir.
Ekki er hægt að hugsa sér betri stað til að stoppa á eftir góðan sundsprett en hjá mömmu og pabba og fá kaffisopa. Heppnin var með mér eins og svo oft áður því ilmur af nýbökuðum pönnukökum lagði fyrir vitin er ég keyrði upp að húsinu þeirra og sjóðheitt súkkulaði var borið fram með róma og öllu tilheyrandi. Þarna má sjá þau mömmu og pabba í eldhúsinu heima á Miðstræti 15. Pabbi hefur búið í þessu húsi alla tíð eða frá því að hann var tekinn í fóstur fljótlega eftir fæðingu. Húsið var upphaflega byggt árið 1892 en Steingrímur Torsteinsson lét byggja það en hann flutti síðar til Ameríku. Húsið stóð þá á Ytri Búðum og var torfklætt en timburklætt að innan. Síðan hefur verið byggt við húsið og það lagað og er bara krúttlegt og fínt.
Mamma er mikil húsmóðir og hefur gaman af eldamennsku og bakstri. Hún bauð mér í skötu nú á dögunum og ávexti og rjóma í eftirrétt og mér fannst ég vera komin í messu hjá Þorláki heitnum og upplifði hálfgerða jólastemningu. Skatan bragðaðist hið besta. Ég hef ekki erft þennan áhuga á matargerð frá henni sem er auðvitað miður, því það er nefnilega bagalegt að vera "bara" húsmóðir og hafa ekki gaman af þessum típísku heimilisstörfum eins og að elda mat og þrífa klósett og annað álíka skemmtilegt. En þetta hefur samt gengið svona þokkalega öll mín búskaparár og allir eru vel lifandi og virðast hafa komist þokkalega frá öllu saman. Ég er svo heppin að tengdamamma hefur sko alls ekki gaman af því að elda heldur svo húsbóndinn er því flestu vanur og er þakklátur hverju því trosi sem ég ber á borð fyrir hann. Annars get ég eldað mjög góðan mat ef svo ber undir.
Við Elsa erum að steikja kótilettur í sameiningu milli þess sem ég blogga.
Kvöldmaturinn heima; hlýlegt skarkið úr eldhúsinu, lokkandi ilmurinn sem leggur um allt húsið svo maður fær vatn í munninn: Þetta er næg ástæða til að gleðjast.
Verum því glaðir.
Heyrumst á morgun
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.