16.3.2007 | 08:57
Spræk og hress
Enn kyngir niður snjónum með hálfgerðum éljagangi . Ég verð nú bara hreint að segja alveg eins og er að ég vanþakka alla þessa ofankomu og fer þess á leit við þann sem hefur umsjón með allri þessari snjósöfnun að fara að snúa sér að öðru og koma með betra veður. Þetta er auðvitað eintómt vanþakklæti og óþarfa nöldur en svona er þetta samt. Ég nenni ekki að moka frá útidyrunum og skafa sínkt og heilagt af bílnum.
Nú vinn ég að gerð afmælisbrags fyrir sextugan strákpjakk svo þá verð ég að kúpla mig út úr blogg gírnum og fara í annan gír. Það er gaman að yrkja þegar maður er í stuði en oft er ansi erfitt að koma sér í rétta gírinn. Þá dansa orðin fyrir hugskotum mínum eins og ballettdansmeyjar sem allar kunna upp á hár réttu sporin og þegar ég dett niður á endarím og skondnar innhendingar er eins og ég sé lítill krakki sem fær sælgæti. Ég verð helst að klára braginn í dag.
Enn gríp ég niður í heilsubæklinginn frá Belís heilsuvörum, bara til að fara út í daginn í góðu skapi. Þar gefur augum að líta Bandex úthaldskrem fyrir karlmenn sem á víst að koma að góðum notum þegar leikurinn stendur stutt eða jafnvel aðeins í nokkrar mínútur með tilheyrandi vanlíðan og vonbrigðum. Við notkun Bandex verður undirbúningurinn góður og úthaldið betra og er þetta bráðnauðsynlegt krem til að koma í veg fyrir sár vonbrigði. Strákar mínir, þá vitið þið það. Þar má einnig sjá nefháraeyðir sem sem gengur fyrir rafhlöðum og gerir skyldu sína fljótt og vel og er algjörlega hættulaus. Háreyðing úr nefi og eyrum getur verið sársaukafull eins og allir vita og er þetta töfratæki því án efa mjög þarft í dagsins önn. Þessi bæklingur er stórskemmtileg lesning.
Spilavistin er í kvöld og þá verð ég að bæta fyrir þau mistök sem ég gerði á síðustu spilavist en þá reiknaði ég stigin rangt út og sigurvegarinn sat eftir með sárt ennið. Núna fær hann sín verðlaun og vonandi fyrirgefur hann mér klaufaskapinn.
Annars er ég vongóð um að einhverjir komi og troði upp hjá mér um páskana og hef ég haft spurnir af enn einu bandinu sem er í smíðum og ætlar að stíga á stokk í Kjallaranum þessa helgi. Það verður án efa skemmtilegt.
Að öðru leiti er ég bara nokkuð spræk og hress.
Læt kannski heyra aftur í mér í dag ef mér gengur vel með braginn.
Smá gullkorn í tilefni dagsins:
"Hægðu á þér og njóttu lífsins. Ef þú ferð of hratt missirðu ekki aðeins af fegurð landslagsins- þú tapar líka tilfinningunni fyrir því hvert þú ert að fara og hvers vegna."
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 635843
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.