11.3.2007 | 13:28
Roðlaust og beinlaust
The Pitchfork Rebellion eða "Heykvíslauppreisnin" hélt alveg frábæra tónleika í gærkvöldi. Það er synd hve fáir komu til að njóta þeirrar vel frambornu tónlistarveislu sem þar var borin á borð. Þeir sem komu voru alveg hæstánægðir og það er það sem máli skiptir. Þau ætla að koma til mín aftur og þá ætla ég rétt að vona að fólk láti sig ekki vanta. Fanney er stórgóð söngkona og lék sér að því að taka Ellu Fitzgerald, Ninu Simone og Frank Sinatra og gerði það vel. Héðinn er einn af þessum geðugu gítaristum og mjög fær á sínu sviði. Maður á ekki að neita konfektinu, sérstaklega þegar það bragðast svona einstaklega vel og er í boði Vertsins.
Roðlaust og beinlaust ómaði að mestu í hljómtækjunum eftir tónleikanna en þeir spila sjómannalög að mestu og gera það misvel. Þetta eru sjóarar og gefa diskinn út til styrktar björgunarskóla sjómanna. Þeir eru skemmtilegir og halda þokkalegum takti og hægt er að dansa eftir einum og einum valsi. Þeir misþyrma reyndar einu þekktasta lagi Bubba með þeim hætti að það er eins og stál og hnífur standi mér í hjartastað. Ég hleyp þá til og spóla með hraði yfir þessi hroðalegu óhljóð. Maður getur ekki setið undir hverju sem er.
Fréttir eru af fjöri út á Óshlíð í morgunsárið, en maður á fertugsaldri fékk sér sundsprett í Ósvörinni og þurfti lögreglan á Ísafirði að sækja hann. Það hlýtur að hafa verið kalt og ónotalegt því það hefur án efa verið kaldur koss sem Alda smellti á þennan ofurhuga. Heppilegt að það fór ekki illa.
Ég hef ekki passað nægilega vel upp á mig undanfarið. Keyrt mig áfram og gleymt því sem mestu máli skiptir fyrir mig. Það er að passa upp á þau verkfæri sem nýtast í baráttunni við að halda jafnvægi og innri ró. Fara á AA fundi og lesa AA bókina og finna æðri mátt. Ég hélt ég væri öðruvísi enn allir aðrir og þyrfti ekki á öllu þessu að halda. Löngun í áfengi kemur þessu máli ekkert við enda er löngunin engin. Ég finn það að líðanin er að breytast og hnúturinn fyrir brjósti mér er að búa um sig aftur og fíflunum í kringum mig fer fjölgandi, ég skammast í stelpunum mínum, karlinn fer í taugarnar á mér og ég er ótrúlega meyr og brothætt. Það þýðir einfaldlega að heilinn er farinn að kalla á meira gleðiefni sem er dópamín en það er efni sem heilinn fær í miklu magni er áfengi er innbyrgt. Heilinn er ótrúlegt verkfæri og getur verið útsmoginn og svikull. Ég hef verið í mjög góðu jafnvægi undanfarna mánuði og tekið hverjum degi með svo mikilli eftirvæntingu, tilhlökkun og gleði og hef notið hverrar mínútu og þið hafið vonandi heyrt það á skrifum mínum. Það hjálpar mér að geta deilt minni líðan með öðrum sem eru í sömu stöðu og ég og þið, lesendur góðir, fáið svo að njóta þessa opinskáa kjaftagangs míns hér á blogginu og það hjálpar mér líka eins ótrúlegt og það kann að hljóma. Ég verð greinilega að vinna vel í sjálfri mér það sem ég á eftir ólifað ef ekki á illa að fara.
Ég ætla samt að halda áfram að vera jákvæð, glettin, stríðin og kannski dálítið klúr og reyna eftir fremsta megni að láta mér finnast lífið og tilveran vera dásamleg og njóta þess að eiga samleið með ykkur.
Í hvert sinn sem dagurinn í dag virðist óyfirstíganlegur, reyni ég að gleðjast yfir því að á morgun kemur nýr og betri dagur.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 635843
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Þú þarft bara að koma suður og kíkja í flug. Ég get örugglega splæst á þig svona hálfum líter af adrenalíni, það bjarga þessu:).
kveðja Andri og þórunn
Andri og Þórunn (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 19:36
Það væri vel til fundið og myndi örugglega losa um hnútinn innra með mér að fara í glæfra flug með þér Andri minn.
Ég yrði örugglega eins og ný manneskja á eftir, sér í lagi ef þú tækir nokkrar bakfallslykkjur og stoll.
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 11.3.2007 kl. 22:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.