4.3.2007 | 23:48
Kóngurinn klikkar ekki
Við fórum á tónleika Bubba Mortens í Ísfjarðarkirkju í kvöld og klikkaði kóngurinn ekki frekar en fyrri daginn. Bubbi er eins og besta eðalvín sem unnið er úr gæða þrúgum og látið gerjast við kjörskilyrði og geymt við rétt hitastig. Slíkur eðaldrykkur bragðast alltaf betur og betur eftir því sem hann eldist. Hann tók nokkur ný lög í bland við þessi gömlu og góðu og spilaði snilldar vel á gítarinn sinn og stundum hljómaði undirleikurinn líkt og það væri heil hljómsveit á bak við hann. Hann er búinn að vera einn af mínum uppáhalds tónlistarmönnum frá fyrstu tíð og þessir tónleikar voru æðislegir. Ísafjarðarkirkja er frábært hús, bæði notaleg og falleg og tilvalinn í slíkt tónleikahald. Bubbi lítur út eins og táningur þótt kominn sé á sextugsaldur. Hann hefur mátt muna tímanna tvenna en alltaf risið upp og sýnt það og sannað að það er aldrei of seint að krafla sig út úr vandræðum lífsins ef rétt er á spilum haldið.
Spilavistinn fór vel fram á föstudagskvöldið og spilað var á átta borðum. Valdi Ingólfs kom, sá og sigraði í karlaflokki og hafði með sér verðlaun auk Siggu Jónu sem er mikill spilafíkill og sópaði til sín verðlaunum þetta kvöldið. Hún stóð bæði uppi sem sigurvegari kvöldsins í kvennaflokki og sigurvegari kvenna eftir þrjú kvöld. Elvar Stefánsson hlaut einnig þriggja kvölda verðlaun. Eitthvað varð Vertinum á í messunni þegar stigin eftir þrjú kvöld voru reiknuð út og þegar kvöldið var á enda höfðu flestir fengið verðlaun af þátttakendum nema sigurvegarinn sjálfur. Það varð smá ruglingur af því að hann hafði spilað sem kona í tvö skipti. Það þýðir ekkert annað en að viðurkenna mistök sín og ég hringdi strax í Pétur Jónsson sem hafði farið heim með tárin í augunum yfir þessari yfirsjón minni og skildi hvorki upp né niður í þeim reikningsaðferðum sem viðhafðar voru við þessa útreikninga á stigum. Hann á því inni verðlaunin sín og er með réttu sigurvegari. Þeir sem vermdu botnsætin voru Jón Bjarni og Hrafnhildur Sigurgeirs. Það er nefnilega líka til mikils að tapa og því bráðnauðsynlegt að mæta þó það sé ekki nema til að fara heim með öngulinn í rassinum.
Aðalfundur sparisjóðsins fór vel fram. Maturinn var mjög frambærilegur en SKG veitingar höfðu umsjón með honum og reiddu fram smárétti af mikilli fagmennsku. Stofnfjáreigendur voru í góðum gír og glaðir yfir gróða sínum. Sumir tóku hluta af gróðanum út í koníaki og voru hinir kátustu er Vertinn skenkti með miklu örlæti í glös gesta. Þar var ekkert til sparað enda er það Sparisjóðurinn sem borgar brúsann og það verður ekki leiðinlegt að útfylla þann reikning. Annars er það nú einu sinni svo að allur gróði af rekstri Einarshúss fer í uppgerð hússins sem stendur, en vonandi rennur upp sá dagur að það sem kemur í kassann geti runnið nánast óskipt beint í minn vasa.
Ég og Halla Signý gengum rösklega út að Ósi og var mikill sláttur á kerlingunum sem strunsuðu göngustíginn masandi án afláts um allt og ekki neitt og leystu í leiðinni öll heimsins vandamál. Léku sólargeislarnir við okkar á leiðinni og reyndu að leggja orði í belg við og við en auðvitað komust þeir ekki að í umræðunni enda höfðu ekki frá neinu merkilegu að segja. Himininn var heiður og blár og Snæfjallaströndin leit lokkandi í áttina til okkar vinkvennanna og dáðist að dugnaði okkar í göngutúrnum.
Ég brá mér á hestbak á Blesa með Lilju og það er svo yndislegt að fara fetið og njóta veðurblíðunnar og náttúrunnar hér.
Það vekur athygli mína hversu fáir kvitta fyrir innlit á síðuna nú orðið og hef ég smá áhyggjur af því að þið séuð að reyna að þegja mig í hel. Ég ætla samt að halda áfram að skrifa á meðan það gerir mér gott.
Stál og hnífur og sæl að sinni
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 635850
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Bara að kvitta
Fylgist vel með blogginu þínu, enda afburðagaman að lesa og ekki leiðinlegt að geta fylgst með því sem við er að vera í Víkinni.
Það varð ekkert úr hitting síðast þegar þú komst suður, svo við gerum bara betur næst.
Kv. Mæja Hauks
Mæja Hauks (IP-tala skráð) 5.3.2007 kl. 08:48
Hæhæ, maður er ekkert viljugur að drífa puttana á lyklaborðið en sumsé hér er ég með morgunkaffið og kvitta fyrir mitt daglega innlit :)
Kveðja, Auður.
p.s. hvar eru broskallarnir?
Auður M. (IP-tala skráð) 5.3.2007 kl. 08:50
Gleymdi...svo er ég líka að hlusta á Grím bæarstjórann þinn á Útvarpi Sögu núna :)
Auður M. (IP-tala skráð) 5.3.2007 kl. 08:58
Sæl Ragna ég fylgist með síðunni þinni flesta daga. þú mættir segja fréttir af tengdaföður þínum svo fólkið hér fyrir sunnan þurfi ekki alltaf að vera í símanum og segja sömu söguna. Annars mjög skemmtileg síða.
KV EV
Erla Valtýsdóttir (IP-tala skráð) 5.3.2007 kl. 12:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.