Komið að kveðjustund

Per, nágranni okkar og góður vinur andaðist í gærkvöldi. Við vorum svo lánsöm að fara í gærdag og kveðja þennan aldna vin sem alltaf hefur reynst okkur svo vel. Hann var vakandi á meðan við stóðum við og hélt þétt i hendina á okkur og reyndi af veikum mætti að segja okkur síðustu orðin. Þegar hann sá að Lilja var með í för mátti sjá tár á hvarmi. Þessi kveðjustund er afar dýrmæt minning.

 

 

Nú lýsir ekki ljós þitt okkur lengur

því lífsins göngu þinni lokið er.

Og hljóðnað hefur hörpu þinnar strengur

í hljóðri bæn við biðjum fyrir þér.

Að fá að kynnast þér var mikill fengur

og fríður hópur eftir þér nú sér.

 

Nú horfin ertu burt úr þessum heimi

á himnahæðum kannar ókunn lönd.

Þar mynda þú og Ninna öflugt teymi

og þakklát gangið saman hönd í hönd.

Algóður Guð nú sálu þína geymi

og gæti þín við Drottins dýrðar strönd.

 

Takk fyrir samfylgdina kæri vinur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það verður eftirsjá að honum Per.  Virkilega fallegt ljóðið til hans.

Kv. Auður.

Auður M. (IP-tala skráð) 5.3.2007 kl. 08:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband