Allt er þegar þrennt er

Vertinn í Víkinni fór galvösk í morgunsárið eða eldsnemma, eitthvað um hálf ellefu, inn á Ísafjörð til ýmissa erindagjörða. Til stóð að slá þrjár flugur í einu höggi og gera það með stæl.  Slurkur af blóði var tekin úr hægri handleggnum sem fyllti þrjár krukkur af hinum dýrmata blóðrauða vökva sem rennur um æðar títtnefndrar. Slíkar blóðprufur skulu  teknar annanhvern mánuð á meðan ég tóri því fylgjast þarf vel með sjúkdómnum því hann getur verið fljótur að ná sér aftur á strik.

Eftir blóðtökuna hljóp ég við fót í ungbarnaeftirlitið því ennþá þarf ég mínar ungbarnasprautur. Hjúkkunni leist nú ekkert á hóstann í Vertinum og sagði skýrt að venjulega væri mæðrum ungabara bannað að koma með börn sín í sprautur í slíku ástandi. Ég svaraði um hæl að mamma væri á Skýlinu og væri varla í stakk búin til að koma með mig seinna svo ég heimtaði bara sprautuna og það gekk eftir. Ég var sprautuð í hægri handlegginn sem var betra því sá vinsti var útstunginn.

Svo lág leiðin uppá næstu hæð þar sem mín beið beinþéttnilyfið en það fæ ég mánaðarlega með ég tóri og nýrun þola. Ég var svo ljónheppin að hafa stálbrunninn á sínum stað og fékk því stunguna beint í bringuna hægra megin enda handleggirnir báðir undir. Þá voru tekin lífsmörk líkt og venjulega og ég var bara vellifandi þrátt fyrir að hafa smávægilegan hita. Núna eru því beinverkirnir sem fylgja þessari lyfjagjöf aðeins verri en vanalega og trúlega muna ungabarnasprautan leggja mig í rúmið á morgun en hvað er það á milli vina. Ég hlít nú að hafa legið af mér annan eins í vesældóm og viðlíka auðnuleysi einhverntímann um æfina. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband