10.3.2014 | 23:16
Kátar konur en sviknir karlar
Vertinn efndi til stórhátíðar síðastliðna helgi og setti markið hátt. Til stóð að halda tvö aðskilin dúndurpartý og nýta hið stórglæsilega Félagsheimili undir annað þeirra en þar átti að vera karlakvöld með meiru og hið margfræga Einarshús átti að nýtast undir konukvöld.
Karlarnir áttu að verma bekki samkomuhússins stóra en þegar nálaðist helgi þóttu of fáir hafa sýnt teitinu áhuga svo það var fellt niður. Til stóð að hafa kútmaga fyrir þessa krúttmaga í bland við annað gómsætt fiskmeti en vegna þess að kútmagarnir fást ekki keyptir í Samkaup í niðursuðudós og vinnan við þá er alveg gríðarlega mikil þótti það of riskí að halda kvöldinu til streytu. Því fór sem fór.
Það er ekki frítt við það að Vertinn hafi séð tár á hvarmi margra fílefldra karlmanna í bænum sem bera sig aumlega yfir ástandinu og telja sig svikna af fiskihlaðborðinu fína. Skemmst er frá því að segja að Vertinn finnur til meðaumkunnar með karlpeningnum enda hefur hart verið lagt að títtnefndri að efna það loforð sem gefið var. Takið því 22. mars frá ágætu karlar undir karlafagnað í Einarshúsi.
Konurnar aftur á móti skemmtu sér konunglega á konukvöldinu enda hið glæsilegasta í alla staði. Fleiri konur komust þó að en vildu.
Þar var Vertinn í Víkinni svo ljónheppin að fá til liðs við sig bolvískan kokkanema sem tók sín fyrstu skref sem starfsmaður í Einarshúsi en er nú að læra í Reykjavíkinni. Hún bauð upp á fjórrétta matseðil og gerði það svo sannarlega með glans og maturinn var alveg einstaklega góður. Bolvíkingar mega svo sannarlega vera stoltir af henni Steinu á Ósi og það verður mikið gleðiefni þegar hún kemur heim að afloknu námi.
Til stóð að hafa annan Bolvíking á stóra sviðinu í Kjallaranum að konukvöldi loknu en því miður tóku náttúruöflin í taumana og leyfðu fólki ekki að ferðast hingað vestur hvorki á láði né legi. Vonandi verður hægt að bjóða honum Einari Erni seinna hingað heim.
Ekki er hægt að minnast á konukvöldið öðruvísi en að nefna konuna sem var algjörlega tekin í gegn í breyttu útliti en það var auðvitað hún Gunna, ekki bara mín, heldur Gunna okkar allra Bolvíkinga. Hún átti svo sannarlega skilið að fá allherjar fíneseringu enda var hún alveg glæsileg þegar upp var staðið.
Tískusýningin var svo á sínum stað og þar voru nokkrar bolvískar konur sem sýndu falleg föt og voru eins og þær hefðu aldrei gert annað um æfina. Sína, Sóley, Kæja, Guðný Hildur og Elsa mín voru algjörlega óaðfinnanlegar líkt og Þórunn tengdadóttir sem er jafnframt tengdadóttir Bolungarvíkur en þar var hún ásamt Þóru tvíburasystur sinni.
Mér var það til happs að Þórunn og þóra gáfu sér tíma til að koma vestur til að sjá um hár og förðun á stelpunum því það kunna þær svo afskaplega vel. Það er nú ekki leiðinlegt að geta nýtt fjölskylduna sína í fyrirtækinu sínu, þetta er jú fjölskyldufyrirtæki. Það væri nú hinsegin ef maður mætti það ekki.
Svo var Ylfa Mist veislustjóri, það eru nú trúlega misjafnar skoðanir á því hversu mikill Bolvíkingur hún er því montið í okkur þessum bornu og barnfæddu Bolvíkingingum keyrir nú stundum um þverbak. Eitt veit ég þó að hún gerir meira fyrir byggðarlagið sitt en margur annar.
Ekki má svo gleyma stelpunum í eldhúsinu Rebekku og Sigríði sem hjálpuðu til og Karitas sem sá um barinn í Kjallaranum á eftir. Allt frábærar bolvískar stelpur.
Einnig má minnast á sjálfan Vertinn í Víkinni, bolvísk í húð og hár skal ég segja ykkur langt aftur í ættir. Hún stóð svosem vaktina svona eins og hún gat og gerði það trúlega þokkalega. Hún hefur mikið dálæti á fötum frá tískuversluninni Flash í Reykjavík og verslar þar oft og mikið líkt og margar aðrar bolvískar konur. Flash gerði vel við okkur, veitti okkur góðan afslátt af glænýjum fötum sem ekki býðs annarsstaðar og konur kunnu svo sannarlega að meta það. Það ber að þakka sem og öllum þeim sem að þessu kvöldi komu, þatttakendum jafnt sem gestum því án þeirra væri þetta ekki hægt.
Vonandi verður hægt að halda svona konukvöld einhverntíma aftur.
Þangað til skuluð þið elska hvert annað
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.